Tvítug berar sig á netinu

Ný íslensk kvikmynd í fullri lengd, Webcam, er væntanleg síðar á árinu, en myndin er gamanmynd um tvítuga stúlku sem gerist „cam-girl“ ( webcam-stelpa sem berar sig fyrir framan vefmyndavélina og sendir efnið út á netinu ).

Nýverið kom út fyrsta kitla fyrir myndina og má sjá hana hér fyrir neðan:

Nýtt kitl-plakat er einnig komið út auk þess sem búið er að opna Facebook síðu.

webcamteaser-686x1024

Leikstjóri myndarinnar og handritshöfundur er Sigurður Anton Friðþjófsson og framleiðandi er Magnús Thoroddsen Ívarsson. Anna Hafþórsdóttir og Telma Huld Jóhannesdóttir fara með aðalhlutverkin í myndinni.

Stikk: