Banks Power Rangers þorpari

Pitch Perfect 2 leikkonan og leikstjórinn Elizabeth Banks hefur verið ráðin í hlutverk illmennis í nýja mynd um Power Rangers gengið, en Lionsgate framleiðslufyrirtækið ætlar að gera myndina eftir þessum vinsælu barnaþáttum frá tíunda áratug síðustu aldar.

elizabet banks

Dean Israelite, sem leikstýrði tímaferðlags – úrklippumyndinni ( found-footage) Project Almanac, mun leikstýra.

Nýliðar í leikarastétt, þau RJ Cyler, Becky G, Ludi Lin, Naomi Scott og Dacre Montgomery, leika unglingana kraftmiklu og litríku, sem þurfa að bjarga heiminum.

Banks mun leika hinn sígilda þorpara Rita Repulsa – geimverunorn, sem hefur illt í hyggju.