Búa sig undir stríð

Það styttist óðum í Marvel ofurhetjumyndina Black Panther: Wakanda Forever, framhald Black Panther frá árinu 2018. Myndin mun sigla í kvikmyndahús á Íslandi ellefta nóvember næstkomandi.

Miðað við stiklu myndarinar er ljóst að þá verður mikið um dýrðir.

Opinber söguþráður er þessi: Ramonda drottning, Shuri, M’Baku, Okoye og Dora Milaje þurfa að grípa til vopna til að vernda konungsríkið Wakanda fyrir alþjóðlegum innrásarher eftir að konungurinn T’Challa deyr og þjóðin er í sárum. Dularfull mexíkósk þjóð sem rís úr undirdjúpunum reynist enn frekari áskorun fyrir herinn.

Fjöldi glæsilegra persóna

Fjöldi glæsilegra persóna kemur við sögu í myndinni og hér fyrir neðan má berja þær augum á stórfallegum nýjum persónuplakötum. Smelltu til að sjá myndirnar stærri: