Ellen í Óskarsdansi

ellenÞað styttist í afhendingu Óskarsverðlaunanna bandarísku, en þau verða veitt þann 2. mars á næsta ári. Kynnir í þetta sinn verður gamanleikkonan og spjallþáttastjórnandinn Ellen DeGeneres, en forsvarsmenn hátíðarinnar hafa sett myndband á netið í leikstjórn Paul Feig þar sem Ellen stormar prúðbúin um strætin í fylgdi smókingklæddra herramanna.

Kíktu á myndbandið hér fyrir neðan, en það er hluti af „Here We Go“ Óskarskynningarherferðinni sem fer í fullan gang 3. janúar nk. í Bandaríkjunum.