Heimsfrumsýning – Wadjda

Sádí-arabíska kvikmyndin Wadjda verður heimsfrumsýnd í Bíó Paradís fimmtudaginn 6. desember næstkomandi í samvinnu við UN Women á Íslandi.

Í fréttatilkynningu frá Bíó Paradís segir að um sé að ræða sérlega athyglisverða mynd: „Þetta er sérlega athyglisverð mynd fyrir ýmissa hluta sakir. Wadjda er fyrsta kvikmyndin sem tekin er upp að öllu leyti í Sádí-Arabíu. Um leið er þetta fyrsta kvikmyndin sem leikstýrt er af Sádí-arabískri konu, Haifaa Al Mansour, en hún skrifaði einnig handrit myndarinnar. Myndin varpar ljósi á hlutskipti kvenna í Sádí-Arabíu nútímans.“

Wadjda er 10 ára telpa sem dreymir um að eignast reiðhjól en er sagt að það sé ekki í boði fyrir stúlkur. Hún er hinsvegar ekki tilbúin að sætta sig við það. Á sama tíma bíður móðir hennar milli vonar og ótta eftir ákvörðun eiginmanns síns um nýtt kvonfang; mun hann taka sér aðra konu og þannig yfirgefa þær mæðgurnar að miklu leyti?

Ísland er fyrsta landið til að sýna myndina í almennum sýningum

Ísland er fyrsta landið þar sem myndin er sýnd í almennum sýningum.  Myndin var fyrst sýnd á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum sem fram fór í september síðastliðnum og hlaut þar verðlaun samtaka listrænna kvikmyndahúsaeigenda (CICAE verðlaunin). Hún hefur síðan verið á ýmsum hátíðum og hlotið frábæra dóma gagnrýnenda.

„Ég vona að myndin bjóði upp á einstaka sýn á heimaland mitt en vísi um leið til hins sammannlega; vonarinnar og þrautseigjunnar sem fólk um allan heim getur tengt við“, segir leikstýran.

Verk Haifaa Al Mansour í kvikmyndum, sjónvarpi og prentmiðlum hafa skapað henni nafn fyrir að brjótast gegnum þagnarmúrinn sem umlýkur líf sádí-arabískra kvenna og veita röddum þeirra farveg. Hún er fyrsti kvenkyns kvikmyndagerðarmaðurinn í Sádí-Arabíu, landi þar sem opinberar kvikmyndasýningar eru ekki heimilar og er nú meðal lykilfólks á því sviði þar í landi. Velgengni stuttmynda hennar og heimildamynda hefur ekki aðeins orðið mörgum arabískum kollegum hennar innblástur, heldur hrintu þær af stað fjölmiðlaumræðu í landinu um kvikmyndahúsasýningar og tjáningarfrelsi almennt. Í Sádí Arabíu eru verk hennar bæði lofuð og löstuð fyrir að hvetja til umræðu um mál sem hingað til hafa legið í þagnargildi; umburðarlyndi, hættur vegna rétttrúnaðarhyggju og þörfina á að horfa með gagnrýnum augum á ríkjandi viðhorf í landinu.