Hvaða leikkona bað leigumorðingja um að drepa sig?

Í júní síðastliðnum hófst kvikmyndaspurningakeppni Stjörnubíós á útvarpsstöðinni X977, þar sem fólk úr kvikmyndabransanum hefur mætt kvikmyndagagnrýnendum. Átta hófu keppni en aðeins tveir keppendur standa eftir. Það eru þau Sigríður Clausen, kvikmyndarýnir, og Hannes Óli Ágústsson, leikari. Sigríður hafði betur gegn bransamönnunum Sveppa og Hrafnkeli Stefánssyni á leið sinni í úrslitin. Hannes Óli sigraði aftur á móti kvikmyndarýnina Bryndísi Ósk Ingvarsdóttur og Tómas Valgeirsson.

Angelina Jolie grípur í skotvopnið.

Einnig tóku leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson og blaðamaðurinn Þórarinn Þórarinsson þátt, en höfðu ekki erindi sem erfiði og duttu út í fyrstu umferð. Hannes og Sigríður etja því kappi um titilinn kvikmyndaspekúlant Stjörnubíós, og verðlaun frá Sambíóunum. Hægt er að hlusta á hvort þeirra hafði betur með því að spila hljóðbrotið hér að neðan, en þar svara þau spurningum á borð við hvert sé nafn tengdamóður Woody Allen og hvaða heimsfræga leikkona bað leigumorðingja um að myrða sig.

Stjörnubíó er á dagskrá X977 alla sunnudaga klukkan 12:00, og þar fær leikskáldið Heiðar Sumarliðason gesti í hljóðver og kryfur það nýjasta í bíó og sjónvarpi á léttu nótunum.