Jackie Chan fær heiðursóskar

Óskarsakademían hefur ákveðið að veita hasarhetjunni Jackie Chan heiðursóskar á Governors Awards-hátíðinni 12. nóvember.

JackieChan

Aðrir sem fá heiðuróskar verða klipparinn Anne V. Coates (Lawrence of the Arabia), Lynn Stalmaster og heimildamyndaleikstjórinn Frederick Wiseman (Titicut Follies).

„Heiðursóskarinn var búinn til fyrir listamenn eins og Jackie Chan, Anne Coates, Lynn Stalmaster og Frederick Wiseman. Sannkallaðir frumkvöðlar og goðsagnir í sínu fagi,“ sagði Cheryl Boone Isaacs, forseti akademíunnar.

Heiðuróskarinn er veittur á hverju ári fyrir ævistarf og sérstakt framlag í þágu kvikmyndanna.