Jólagetraun kvikmyndir.is – Hvaða leikarar eru þetta?

Eins og við lofuðum um daginn þá er nú komið að jólagátu kvikmyndir.is 2012. 

Um er að ræða verðlauna-myndagátu í fimm liðum, en gáturnar eru sem fyrr eftir þá Aron Örn Þórarinsson, Elmar Ernir Viðarsson og Samúel Karl Ólason.

10 getspakir og heppnir þátttakendur fá miða í bíó fyrir tvo á einhverja af eftirtöldum jólamyndum bíóhúsanna:

The Impossible, Ævintýri Samma 2 eða Life of Pi.  Smellið á heiti myndanna til að lesa söguþráð og aðrar upplýsingar um myndirnar.

En snúum okkur þá að getrauninni. Hér að neðan eru nöfn fimm leikara falin í myndagátum. Byrjaðu á því að finna út úr því hvaða leikarar þetta eru og sendu svo svörin ásamt nafni, heimilisfangi og póstnúmeri á kvikmyndir@kvikmyndir.is

Við birtum svo nöfn vinningshafa á kvikmyndir.is á annan í jólum og póstleggjum miðana til vinningshafa strax á fimmtudaginn.

Gleðileg jól, góða skemmtun og gangi  ykkur vel!