Leitaði í smiðju Tarantino

Snævar Sölvi Sölvason, leikstjóri og handritshöfundur glænýrrar íslenskrar kvikmyndar, Eden, sem frumsýnd var í gær, segist í samtali við Morgunblaðið hafa langað til að gera True Romance  á Íslandi, en True Romance er sígild rómantísk glæpamynd sem gerð er eftir handriti bandaríska leikstjórans Quentin Tarantino, en leikstýrt af Tony Scott.


Með hlutverk Lóu og Ólivers fara Telma Huld Jóhannesdóttir og Hansel Eagle sem er listamannsnafn Ævars Arnar Jóhannssonar.

„Mig langaði að gera True Romance á Íslandi,“ útskýrir Snævar í Morgunblaðinu. Hann segir þar að aðalpersónur myndarinnar séu „bara krakkar“ að selja gras eða pillur, en séu ekki skuggalegt fólk í dimmum húsasundum. Þar á hann við að þetta sé fólk sem er kannski bara að  hlusta á létta jólatónlist í útvarpinu á meðan það er að setja eiturlyf í poka og vigta og tala um nýja heimildarmynd á Netflix. Enginn dauði né drungi sé í gangi, heldur sé í myndinni slegið á létta strengi inn á milli alvarlegra atriða. Þar með sé myndin fyrir vikið blanda raunsæis, spennu og gríns.

Trainspotting persónur

Snævar, sem áður hefur gert kvikmyndirnar Slay Masters og Albatross, segist í samtalinu einnig hafa litið þónokkuð til kvikmyndarinnar Trainspotting því persónur hennar séu litríkar og oft spaugilegar.  „Þetta eru allt stórfurðulegir karakterar og þú hlærð mikið að því sem þeir lenda í en öðru hverju lenda þeir í alveg hrikalegum aðstæðum,“ segir Snævar og nefnir til útskýringar skelfilegt atriði úr Trainspotting þar sem barn finnst látið í vöggu sökum vanrækslu og annað þar sem ein aðalpersónanna hefur óafvitandi misst saur í rúmi unnustu sinnar. Í Eden, líkt og í Trainspotting, megi sjá litríkar persónur í krefjandi aðstæðum.

Lifa á jaðrinum

Nánar um söguþráð kvikmyndarinnar segir Sölvi í Morgunblaðinu að Eden fjalli um par, Lóu og Óliver, sem lifi á jaðrinum. Þau kynnast strax í upphafi, hann er á flótta undan réttvísinni og hún er partístelpa sem er komin í klandur. Þau eru heimilislaus, fella fljótlega hugi saman og komast að því að þau eiga sér sameiginlega drauma sem þau vilja að rætist.

Þau ákveði að færa björg í bú með því að fara í smásölu á götunni, selja gras og annað þvíumlíkt og ætla sér að kýla á draumana. En á þeirri leið komast þau í klandur og upp á kant við vafasama menn.