Ljónið vann hug og hjörtu bíógesta

Það þurfti risastórt ljón til að velta toppmynd síðustu þriggja vikna úr sessi á íslenska bíóaðsóknarlistanum. Beast í leikstjórn Baltasars Kormáks, með Idris Elba í aðalhlutverkinu, er nú vinsælasta kvikmynd landsins en Bullet Train naut mestrar hylli í síðustu viku.

Elba í kröppum dansi.

Þrettán hundrð manns sáu Beast á meðan sex hundruð sáu Bullet Train.

Í þriðja sæti sem fyrr eru ofurgæludýrin í DC League of Super-Pets.

Skósveinarnir tekjuhæstir

Tekjuhæsta myndin samanlagt í bíó er Minions: The Rise of Gru með 65 milljónir króna í greiddan aðgangseyri. Thor: Love and Thunder kemur í humátt á eftir með 59 milljónir rúmar og í þriðja sætinu er rokkkóngurinn Elvis í samnefndri mynd Baz Luhrmans með 58 milljónir króna.

Sjáðu splunkunýjan íslenska bíóaðsóknarlista hér fyrir neðan: