Margot Robbie í 'Suicide Squad'

Leikkonan Margot Robbie, sem er hvað þekktust fyrir leik sinni í myndinni Wolf of Wall Street, hefur verið staðfest í hlutverk Harley Quinn í óþokkamyndinni Suicide Squad.

Aðdáendur Batman ættu að þekkja persónuna, en hún hefur oft birst í bæði teiknimyndum og teiknimyndasögum sem aðstoðarmaður Jókersins.

Suicide-Squad-Movie-Harley-Quinn-Margot-Robbie

Suicide Squad er byggð á samnefndri teiknimyndasögu frá DC-Comics þar sem mestu illmenninn fá tækifæri á frelsi gegn því að taka að sér verkefni sem verður að öllum líkindum þeirra síðasta.

Leikarinn Jared Leto er sagður vera í viðræðum um að leika Jókerinn. Einnig hafa verið gátgátur um það hvort Jesse Eisenberg farið með hlutverk Lex Luthor líkt og hann gerir í Batman v Superman: Dawn of Justice.

Myndin verður leikstýrð af David Ayer, sem hefur getið sér gott orð fyrir skriðdrekamyndina Fury.

Stikk: