Martröðin á bakvið tjöld Justice League

Framleiðslusaga stærstu og tvímælalaust dýrustu ofurhetjumyndar DC til þessa var aldeilis þyrnum stráð, svo vægt sé til orða tekið.

Árið 2017 kom úr mynd sem ber nafnið Justice League. Leikstjórinn Zack Snyder hafði tekið við DC línunni og verið að gera sitt með þann heim. Þegar hann þurfti svo að stíga til hliðar frá framleiðslu myndarinnar þegar persónulegur harmleikur skall á var Joss Whedon fenginn til að koma og “klára” myndina fyrir hann. En myndin sem Zack Snyder vildi gera, og myndin sem Joss Whedon gerði eru tvær mjög, mjög ólíkar myndir.

Eftir almenna óánægju gagnrýnenda og aðdáenda með Justice League fóru netverjar að biðja um útgáfu Snyder af kvikmyndinni, þar sem að kynningarefni fyrir myndina bar alls ekki saman við afurðina sem rataði í kvikmyndahús. Árið 2021 var svo loks gefið út hið svokallaða „Snyder-cut“ á HBO max, og áhorfendur fengu að sjá myndina sem Justice League átti að vera.

Í nýjasta þætti Poppkasts bíóhlaðvarps ígrunda þau Nanna Guðlaugar og Tómas Valgeirs hér muninn á þessum tveimur kvikmyndum, framleiðsluferlið og þessa furðulegu, víða hötuðu afbökun Whedons á (umdeilda?) stórverki Snyders

Þáttinn má nálgast hér að neðan í gegnum Spotify.

Poppkast hóf göngu sína í vetur, en þar ræða þáttastjórnendur alls kyns kvikmyndatengd málefni út og inn. Á meðal umfjöllunarefnis má nefna ítarlegar greiningar á kvikmyndunum The Matrix Resurrections, Avatar: The Way of Water, Babylon, Everything Everywhere All at Once og sjónvarpsþættina Black Mirror.

Þættirnir eru aðgengilegir á helstu hlaðvarpsveitum, á meðal þeirra eru Spotify, Apple Podcasts, Google Podcasts, Stitcher ofl.