Myndir mánaðarins - Desember 2017

35 Myndir mánaðarins Kata er fimm ára gömul stelpa sem nýtur lífsins með kanínudúkkunni Mumma, en hann lifnar við og stækkar þegar Kata notar ímyndunaraflið. Þættirnir um Kötu og Mumma hafa verið sýndir í íslensku sjónvarpi og eru fyrir yngsta aldurshóp áhorfenda. Þeir gerast að mestu í ævintýralandinu Mumma- heimi, en þangað ferðast Kata í hvert sinn sem hún glímir við eitthvert vandamál eða þegar forvitni hennar vaknar umeinhvern hlut. Í Mummaheimi lifnar Mummi kanína nefnilega við og stækkar og saman lenda þau Kata í margvíslegum og litríkum ævintýrum. Í þessari sjöundu seríu þáttanna er að finna sjö ný ævintýri þessara glaðlyndu félaga og er hver þáttur rúmlega 10 mínútur að lengd. Kata og Mummi Það er kominn tími til að skreppa eitthvað með Mumma 15. desember 88 mín Teiknimyndir með íslensku tali um vinina góðu, Kötu og Mumma Útgefandi: Myndform VOD Barnaefni 15. desember 105 mín Aðalhlutv.: Brian Cox, Miranda Richardson og John Slattery Leikstj.: Jonathan Teplitzky Útg.: Myndform VOD Sannsögulegt Winston Churchill varð forsætisráðherra Breta þann 10. maí árið 1940 og það kom í hans hlut að tala kjarkinn í þjóð sína sem bjó við stöðuga ógn frá loftárásum Þjóðverja og óttaðist að þýski herinn næði að ganga á land. Óhætt er að segja að Winston Churchill hafi verið umdeildur maður. Um leið og hann naut virðingar og aðdáunar margra fyrir framgöngu sína í upphafi valda- tíma síns á forsætisráðherrastóli mætti hann ávallt talsverðri andstöðu innan stjórnkerfisins sjálfs þar sem hann átti sér marga óvildarmenn. í þessari mynd er sjónum beint að síðustu dögum hans í fyrra skiptið sem hann var forsætisráðherra, nokkrum dögum fyrir innrásina í Normandí, en Churchill óttaðist að innrásin myndi mistakast og að mannfall yrði meira en menn spáðu ... Churchill Þú þekktir ekki þennan mann Churchill – Kata og Mummi Bara leikur Brians Cox í titilhlutverk- inu gerir Churchill þess virði að sjá. Punktar ............................................................................................ l Breski leikarinn Brian Cox þykir fara á al- gjörum kostum í aðalhlutverkinu enda lagði hann mikla áherslu á að túlka Churchill á eins trúverðugan hátt og framast er unnt. l Myndin er byggð á handriti Alex von Tunz- elmann sem lagði gríðarlega vinnu í að afla heimilda um það sem gerðist á þessum dögum fyrir innrásina í Normandí. Churchill fannst hann sniðgenginn í ákvarðanatöku í kringum þessa gríðarlega mikilvægu hern- aðaraðgerð Bandamanna sem nefnd var Operation Overlord og átti í miklum átökum við sína eigin ráðgjafa um framkvæmdina auk þess að glíma við sína eigin samvisku. HHHH - Los Angeles Times HHH 1/2 - Rolling Stone HHH - Empire

RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=