Myndir mánaðarins - Desember 2017
6 Myndir mánaðarins Vatnsberinn 20. jan. - 18. feb. Tvíburarnir 21. maí - 21. júní Vogin 23. sept. - 23. okt. Þú lætur ekki þitt eftir liggja, og manst eftir að ganga frá skærun- um og límbandsstatífinu aldrei þessu vant. Þú gefur öllum í fjöl- skyldunni spiladósir í jólagjöf. Það bendir ýmislegt til að þú lend- ir í talsverðum vatnavöxtum í des- ember, annað hvort fyrir austan eða þegar þú heimsækir einhvern út á nes. Þú færð steypubíl í skóinn. Leggðu áherslu á að pakka öllum jólagjöfunum þínum inn í hvítan jólapappír með gylltum stjörnum og setja á þá silfraða borða því þá mun allt annað ganga upp hjá þér. Þú færð alveg frábæra hugmynd í jólagjafastússinu en gleymir henni áður en þú kemur heim. Þú gerir allt sem þú getur til að gleðja aðra, sérstaklega fólk sem býr á Dalvík. Sporðdrekinn 24. okt. - 21. nóv. Bogmaðurinn 22. nóv. - 21. des. Það gengur allt upp hjá þér í des- ember nema eitthvað plott varð- andi einhvern Hallmund. Hættu bara við það. Mundu að ganga hægt inn um allar dyr. Gleðileg jól. Steingeitin 22. des. - 19. jan. Ungt fólk sem fætt er í krabba- merkinu þarf að spyrja sig margra spurninga upp úr tíunda desem- ber. Íhugaðu að breyta algerlega um stefnu á næstu gatnamótum. Krabbinn 22. júní - 22. júlí Mundu hvað þú gerðir við merki- miðana frá því í fyrra áður en þú kaupir fleiri. Leggðu áherslu á að fá mótorhjól í jólagjöf og þá er aldrei að vita nema einhver gefi þér skíði. Ljónið 23. júlí - 22. ágúst Desember er ekki rétti tíminn til að fá í bakið og því skaltu fresta því fram í janúar. Þú lærir að prjóna og gefur öllum sem þú þekkir græna eða rauðleita lopasokka í jólagjöf. Meyjan 23. ágúst - 22. sept. Hrútar sem komnir eru með skalla ættu að íhuga að fjárfesta í kollu fyrir jólin. Aðrir hrútar eru áminntir um að bursta í sér tennurnar, helst með meðalmjúkum tannbursta. Fiskarnir 19. feb. - 20. mars Það eru talsvert margar jólakúlur í stjörnukortunum hjá þér þessa dagana sem ætti að gefa þér ein- hverjar vísbendingar um hvað muni gerast hjá þér á næstunni. Hrúturinn 21. mars - 19. apríl Ef þú heldur þig á mottunni meiri hluta mánaðarins þá er aldrei að vita nema þú fáir tólf-mánaða bíó- kort í jólagjöf. Væri þaðekki gaman? Farðu út að hlaupa ef þér leiðist. Nautið 20. apríl - 20. maí Stjörnurnar gefa greinilega í skyn að þú þurftir að búa þig undir eitt- hvað sem annað hvort kemur eða kallar þann átjánda. Ef þú átt bíl þá þarftu að láta tékka á pönnunni. Fyrsta leikhlutverk Brie Larson var í þáttum Jays Leno árið 1997 þegar hún var átta ára. Þá lék hún í nokkrum grínauglýsingum fyrir The Tonight Show og er myndin hér að ofan úr einni þeirra. Við vitum því miður ekki hvað stúlkan sem lék með henni í þessari heitir. Þau Dylan O’Brien og Britt Robert- son hittust fyrst árið 2011 þegar þau lékuAubrey ogDave semurðu ástfangin hvort af öðru í myndinni The First Time . Þau urðu svo ást- fangin hvort af öðru í alvörunni og hafa verið saman síðan þá. Þegar Bill Nighy útskrifaðist úr framhaldsskóla var hann ákveðinn í að verða blaðamaður. Þegar það gekk ekki upp ákvaðhann að verða rithöfundur enda hafði hann unun af því að lesa góðar skáldsögur. Hann hefur sjálfur sagt frá því að til að fá andann yfir sig hafi hann eitt sinn skrapað saman þeimpundum sem hann gat og haldið til Parísar. Þar leigði hann sér herbergi með rúmi og skrifborði og hóf að skrifa skáldsöguna „Skáldsagan mikla“ eða The Great Novel . Eftir nokkrar vikur var peningurinn hins vegar búinn og þurfti Bill að leita til breska sendiráðsins til að komast aftur heim. Og þar sem hann hafði aldrei komist lengra með skáldsöguna en að ákveða titilinn hætti hann við rithöfundardraumana og skellti sér í leiklistarnám í staðinn. þetta var árið 1971 þegar hann var 22 ára og það fylgir sögunni að sendiráð- ið hafi sent pabba hans reikninginn sem var upp á 25 pund. Shia LaBeouf var aðeins sextán ára þegar hann tókst á við sitt fyrsta aðalhlutverk í bíómynd eftir að hafa leikið lítil hlutverk í ýmsum sjónvarpsþáttum, t.d. ER , Freaks and Geeks og The X-Files , frá ellefu ára aldri. Myndin var Holes sem varð síðan ákaflega vinsæl enda sérlega góð, en við gerð hennar gekk mótleikari hans, Jon Voight, honumnánast í föðurstað og hefur Shia síðan kallað hann sinn annan föður. Hann er því í þeim skilningi stjúpbróðir Angelinu Jolie. Jake Gyllenhaal, sem verður 37 ára 19. desember, á 27 ára leikferil að baki enda lék hann í sinni fyrstu mynd, City Slickers , aðeins tíu ára að aldri. Hann sló svo í gegn 21 árs í sínu fyrsta aðalhlutverki, þ.e. í myndinni Donnie Darko , þar sem hann lék ámóti systur sinni Maggie í fyrsta og eina skiptið hingað til. Nú eru liðin 100 ár síðan Charlie Chaplin sendi frá sér stuttmyndina EasyStreet þar semkarakterinnsem hann er þekktastur fyrir að hafa skapað, umrenningurinn útskeifi með hattinn og stafinn, gerðist lögreglumaður og kom á lögum og reglu við samnefnt stræti þar sem ónefnd ofbeldisbulla sem Eric Campbell lék ógnaði nágrönnum sínum stanslaust. Þegar þarna var komið sögu á ferli Chaplins voru þrjú ár liðin síðan hann birtist fyrst sem umrenningurinn í myndinni Strange Predicament eftir Mabel Normand og hafði Chaplin síðan gert nokkrar stuttmyndir um hann. Segja má að vinsældir Easy Street hafi endanlega fest þennan karakter í sessi enda sneri Chaplin sér alfarið að gerðmynda umhann eftir þetta og átti á næstu 19 árum eftir að skapa með honum nokkrar af bestu bíómyndum sögunnar.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=