Myndir mánaðarins - Desember 2017

8 Myndir mánaðarins Ég held ég geti alveg fullyrt að ég hafi alltaf verið stillt og prúð sem unglingur. Það var ekki til upp- reisn í mér enda fékk ég alltaf að gera það sem ég vildi gera og var því alltaf ánægð með allt. - Brie Larson, um unglingsárin. Ég hlusta bara á einn gagnrýn- anda, mömmu. - Naomi Watts . Já, en mér hafa bara aldrei verið boðin nein hlutverk. Öll hlutverk sem ég hef fengið hafa komið eftir margar áheyrnarprufur, oftast af lengri gerðinni, og mikla baráttu. Og ég hef tapað hundrað sinnum oftar en ég hef unnið. - Dylan O’Brien, spurður hvernig það sé að vera kominn á stall með þeim sem geta valið úr tilboðum . Þeir sem skrifa verkin eru hetjurn- ar mínar. Ég leik fyrir þá, reyni að ljá persónunum sem þeir sköpuðu þá rödd og það vægi semþeir vildu að þær hefðu. Þetta hefur alltaf verið mín fílósófía gagnvart leiklistinni, að leika fyrir höfundana og gera þá ánægða. - David Suchet . Ég vil helst vera heima. Sem allra mest. Það er engin traffík þar. - Kumail Nanjiani , sem segist vita fátt leiðinlegra en að vera fastur í umferðarhnút. Ég hef tvisvar leikstýrt, en geri það ekki aftur. Það var allt of orkufrekt . - Brian Cox. Mér finnst það áberandi að leik- arar sem veljast helst til að leika vonda fólkið eru oftast besta fólk- ið í raunveruleikanum – og öfugt . - Jonathan Rhys Meyers. Leikarastarfið er hvítflibbastarf. Maður mætir í það í jakkafötum. - Bill Nighy, sem hefur tvisvar hlotið titilinn best klæddi Bretinn. Það er mikilvægt að fólk gleymi aldrei svona atburðum í sögunni. - Fionn Whitehead, sem leikur stórt hlutverk í myndinni Dunkirk . Mér leiðast fréttir af kvikmyndum og leikurum sem snúast um pen- inga, svona fréttir eins og hvað þær kostuðu og hvað leikararnir fengu borgað. Ég hef engan áhuga á þessu þegar ég horfi á kvikmynd. Ég hef áhuga á sögunni. - Holly Hunter. Ég trúi því að því minna sem fólk veit ummannþví auðveldara sé að fá það til að trúa að persónan sem maður er að leika sé raunveruleg. - Cillian Murphy, sem svarar engum spurningum um einkalíf sitt. Ég er hræddur við margt. Ég er til dæmis alltaf hræddur þegar ég er að leika ... óttast alltaf að ég sé ekki að ná þessu. En þá hugsa ég með mér hvers konar forréttindi það eru að geta starfað sem leikari og það hjálpar mér yfir hræðsluköstin. - Jake Gyllenhaal, spurður við hvað hann sé hræddastur. Richard Pryor er minn uppáhalds- leikari. Ég ætla mér að gera mynd um hann einhvern tíma. - David Gordon Green . Það er enginn eins og Johnny og það eru algjör forréttindi að vinna með honum, sjá hvernig hann nálgast hlutina og læra af honum. - Orlando Bloom, að tala um Johnny Depp . Ég hef verið hræddur alla ævi. Ég er alltaf hræddur við eitthvað nema þegar ég er að leika og þykjast vera einhver annar en ég er. Ef ég hefði það ekki þá væri ég bara einhvers staðar á bak við vegg, skíthræddur við allt og alla. - Shia LaBeouf . Mér líkar við það viðhorf að ekkert geti verið fullkomið og að það sé alltaf hægt að gera betur. Hins vegar hef ég um leið orðið vitni að fullkomnun, sérstaklega í list. - Jack O’Connell . Þegar ég verð uppgefin eða það þyrmir yfir mig af einhverjum ástæðum þá fæ ég mér göngu um strendurnar við Sydney og tek brimbrettið með. Þá öðlast maður endurnýjaðan skilning á því um hvað þetta snýst allt saman í raun. - Toni Collette .

RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=