Myndir mánaðarins, mars 2018 - Bíó
26 Myndir mánaðarins Pacific Rim Uprising Baráttan var ekki búin Aðalhlutverk: John Boyega, Scott Eastwood, Cailee Spaeny, Charlie Day, Burn Gorman, Rinko Kikuchi, Jing Tian, Adria Arjona og Karan Brar Leikstjórn: Steven S. DeKnight Bíó: Laugarásbíó, Smárabíó, Háskólabíó, Sambíóin Egilshöll og Keflavík og Borgarbíó Akureyri 141 mín Flags of our Fathers. Frumsýnd 23. mars l Upphaflega ætlaði Guillermo del Toro, aðalhöfundur og leikstjóri fyrri myndarinnar, að leikstýra þessari líka en ákvað síðan að leik- stýra frekar The Shape of Water sem er þegar þetta er skrifað tilnefnd til þrettán Óskarsverðlauna. Guillermo er þó einn af aðal- framleiðendum Pacific Rim Uprising , ásamt og John Boyega. l Pacific Rim Uprising er fyrsta bíómyndin sem Steven S. DeKnight leikstýrir en hann er þó enginn nýgræðingur í bransanum og á m.a. að baki framleiðslu og leikstjórn vinsælla sjónvarpsþátta eins og Angel , Dollhouse , Smallville , Spartacus og Daredevil . Nokkur ár eru liðin síðan Stacker Pentecost og mönnum hans tókst að ráða niðurlögum síðasta Kaiju-skrímslisins og loka fyrir gátt þeirra á botni Kyrrahafsins. Það verður því uppi fótur og fit þegar í ljós kemur að einhver hefur opnað gáttina aftur og að yfirvofandi er ný árás enn öflugri skrímsla en áður. Vísindaskáldsöguhasarinn Pacific Rim eftir Guillermo del Toro sem var frumsýndur sumarið 2013 er áreiðanlega enn í fersku minni kvikmyndaunnenda, enda naut sú mynd mikilla vinsælda um allan heim og halaði inn hátt í 500 milljónir dollara í miðasölu. Strax var farið að tala um gerð framhaldsmyndar sem nú er loksins tilbúin og verður frumsýnd á sama tíma um allan heim 23. mars. Nokkur ár eru liðin síðan síðast og við kynnumst hér syni Stackers Pentecost, Jake Pentecost, sem þrátt fyrir að vera efins um að geta fetað í fótspor föður síns sem varð alþjóðleg hetja eftir að hafa fórnað lífi sínu í fyrri bardaganum, tekur að sér ásamt keppinauti sínum, Nate Lambert, að leiða nýja sveit Jaeger-stjórnenda gegn Kaiju-skrímslunum þegar þau birtast skyndilega á ný úr hafinu ... Þeir John Boyega og Scott Eastwood leika þá Jake og Nate sem fara fremstir í flokki Jaeger-stjórnendanna sem berjast við Kaiju-skrímslin. Pacific Rim Uprising Spenna / Hasar / Vísindaskáldsaga Punktar .................................................... Veistu svarið? Þegar Scott Eastwood, sonur Clints Eastwood, var að hefja leiklistarferil sinn notaði hann dulnefnið Scott Reeves. Undir því nafni lék hann í sinni fyrstu mynd sem var reyndar leikstýrt af föður hans og var að hluta til tekin upp á Íslandi. Hvaða mynd var það? Kaiju-skrímslin eru orðin mun öflugri en þau voru en hin manngerðu Jaeger-varnartæki hafa líka þróast og eru betur vopnum búin en áður. Charlie Day og Rinko Kikuchi snúa aftur úr fyrri myndinni sem þau Newton Geiszler og Mako Mori auk Burns Gorman sem leikur vísindamanninn dr. Hermann Gottlieb á ný.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=