Myndir mánaðarins, mars 2018
10 Myndir mánaðarins Wonder Við erum ekki öll eins Aðalhlutverk: Jacob Tremblay, Julia Roberts, Owen Wilson, Mandy Patinkin, Daveed Diggs, Izabela Vidovic, Emma Tremblay, Noah Jupe, Danielle Rose Russell og Sonia Braga Leikstjórn: Stephen Chbosky Útgefandi: Myndform 113 mín Veistu svarið? Jacob Tremblay hefur þrátt fyrir ungan aldur leikið í fjöl- mörgummyndum, þ. á m. í hinni áhrifaríku verðlauna- mynd Room eftir Lenny Abrahamson, en sú sem lék móður hans í þeirri mynd hlaut Óskarsverðlaunin fyrir besta leik í aðalhlutverki kvenna. Hvað heitir hún? Brie Larson. 1. mars August Pullman, alltaf kallaður Auggie, þjáist af sjaldgæfum litningagalla semhefur afmyndað andlit hans. Af þeimsökum þarf hann að glíma við fordóma og útskúfun flestra á hans aldri, m.a. í skólanum. Gæfa hans er að eiga að góða, jákvæða og samheldna fjölskyldu sem styður hann með ráðum og dáð og hvetur hann áfram. En stundum er jafnvel það ekki nóg. Wonder er byggð á verðlaunaskáldsögu eftir Raquel Jaramillo Palacio sem kom út í febrúar 2012. Bókin varð fljótlega afar vinsæl en hún segir frá hinum 10 ára gamla Auggie sem vegna svokallaðs Treacher Collins-heilkennis er afmyndaður í andliti og hefur af þeim sökum alist upp í verndaðra umhverfi en flestir gera. Nú er hins vegar komið að því að hann fari í bekk í venjulegum skóla með jafnöldrum sínum og um leið og fyrsti skóladagurinn hefst þarf hann að læra að takast á við lífið og fordómana á annan hátt en hann er vanur og meira upp á eigin spýtur en áður. En það er enginn leikur ... OwenWilson og Julia Roberts leika foreldra Auggies í Wonder , en hann er leikinn af Jacob Tremblay. Systir hans, Via, er leikin af Izabelu Vidovic. Wonder DVD VOD Drama / Fjölskyldumynd HHHH 1/2 - The New York Times HHHH 1/2 - Village Voice HHHH - Variety HHHH - Time Out HHH 1/2 - Indiewire HHH 1/2 - HollywoodReporter HHH 1/2 - ChicagoSun-Times HHH - Empire HHH - Rolling Stone HHH - L. A. Times Punktar .................................................... l Hinn ungi Jacob Tremblay sýnir sannkallaðan snilldarleik í aðal- hlutverki myndarinnar en hann undirbjó sig undir gerð hennar m.a. með því að hitta fólk með Treacher Collins-heilkennið og kynna sér lífssýn þeirra og reynslu. Þess má geta að systir Jacobs og faðir, Emma og Jason Tremblay, leika bæði í myndinni auk þess sem höfundur sögunnar, R. J. Palacio, kemur fram í feluhlutverki.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=