Myndir mánaðarins, mars 2018

18 Myndir mánaðarins I, Tonya Hneykslið sem skók íþróttaheiminn Aðalhlutverk: Margot Robbie, Sebastian Stan, Allison Janney, Bojana Novakovic, Caitlin Carver, Mckenna Grace, Julianne Nicholson, Paul Walter Hauser og Bobby Cannavale Leikstjórn: Craig Gillespie Útgefandi: Myndform 119 mín Veistu svarið? Tonya Harding á sjálf sinn þátt í myndinni en hún veitti bæði Margot Robbie og leikstjóranum Craig Gillespie upplýsingar og góð ráð við gerð hennar og var ánægð með útkomuna. En fyrir hvaða skauta- tæknilega afrek varð Tonya heimsfræg árið 1991? Hún varð fyrsta konan til að framkvæma stökk með þreföldum snúningi, svokallað „Triple Axel“-stökk. 9. mars Kvikmyndin I, Tonya , sem án nokkurs vafa er ein besta mynd ársins 2017, snýst að stórum hluta um þann fræga atburð þegar ráðist var á bandarísku listskautadrottninguna Nancy Kerrigan í ársbyrjun 1994 og tilraun gerð til að fótbrjóta hana. I, Tonya , semer eftir leikstjórannCraigGillespie ( Larsand theRealGirl , Million Dollar Arm , The Finest Hours ) og gerð eftir handriti Stevens Rogers ( Stepmom , Kate & Leopold , P.S. I Love You ), hefur hlotið fjölmörg verðlaun og frábæra dóma nánast allra gagnrýnenda. Þótt myndin sé sannsöguleg er hún um leið svört kómedía þar sem leikhópurinn, með þeim Margot Robbie, Sebastian Stan og Allison Janney í broddi fylkingar, þykir fara á algjörum kostum. Rannsókn lögreglunnar á árásinni á Nancy Kerrigan leiddi fljótlega í ljós að þar hafði verið að verki maður að nafni Shane Stant og hafði hann verið ráðinn til þess af lífverði og fyrrverandi eiginmanni helsta keppinautar Nancyar, Tonyu Harding, þeim Shawn Eckhardt og Jeff Gillooly. Með árásinni vildu þeir tryggja að Nancy yrði úr leik í samkeppninni umólympíusæti í liði Bandaríkjanna sem keppa átti á Vetrarólympíuleikunum í Lillehammer í febrúar þetta sama ár. Sjálf neitaði Tonya að hafa komið nálægt árásinni eða vitað hvað til stæði og svo fór að þær Nancy kepptu báðar á Ólympíuleikunum enda var Nancy fljót að jafna sig. En málinu var langt í frá lokið og á bak við það sem kom fram í fjölmiðlum er enn merkilegri saga ... Margot Robbie leikur titilhlutverkið í I, Tonya , og hefur verið margverðlaunuð fyrir túlkun sína auk þess að hljóta tilnefningar til Golden Globe-, BAFTA og Óskarsverðlauna fyrir leik sinn. Þess má geta að Margot leikur sjálf í öllum skautaatriðummyndarinnar. I, Tonya Sebastian Stan leikur fyrrverandi eiginmann Tonyu, en hann átti hvað stærstan þátt í árásinni sem gerð var á Nancy Kerrigan. Allison Janney hefur þegar þetta er skrifað hlotið bæði Golden Globe-, og BAFTA-verðlaunin fyrir leik sinn sem móðir Tonyu Harding, LaVona Golden, og er eins og Margot Robbie líka tilnefnd til Óskarsverðlauna. HHHHH - Chicago Sun-Times HHHHH - TimeOut HHHHH - S.F. Chron. HHHHH - Observer HHHH 1/2 - E.W. HHHH 1/2 - Variety HHHH 1/2 - R. Stone HHHH 1/2 - Telegr. HHHH - Empire HHHH - Total Film HHHH - Screen Intl. DVD VOD Sannsögulegt Punktar ....................................................

RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=