Myndir mánaðarins, apríl 2018 - Bíó
24 Myndir mánaðarins The Strangers: Prey at Night Flótti er ekki valkostur Aðalhlutverk: Christina Hendricks, Bailee Madison, Emma Bellomy, Martin Henderson, Damian Maffei, Lewis Pullman, Lea Enslin, Preston Sadleir og Leah Roberts Leikstjórn: Johannes Roberts Bíó: Smárabíó, Háskólabíó og Borgarbíó Akureyri 90 mín Battle of the Sexes. Frumsýnd 13. apríl l The Strangers: Prey at Night er endurgerð myndarinnar The Strang- ers sem leikstjórinn og handritshöfundurinn Bryan Bertino sendi frá sér árið 2008. Myndin er samt ekki alveg bein endurgerð enda hefur verið bætt inn í hana fleiri persónum og sögufléttum en voru í upprunalegu myndinni. Þess má geta að sagan er að hluta til byggð á sönnum atburðum og reynslu sem Bryan Bertino varð sjálfur fyrir þegar hann gisti í samskonar húsnæði og sögupersónur hans og fékk heimsókn innbrotsþjófa. Sú heimsókn hafði að vísu ekki jafnalvarlegar afleiðingar fyrir hann og persónur myndarinnar! Þeir sem kunna að meta æsispennandi myndir með hrollköldu ívafi og hrökkatriðumættu aðmerkja við föstudaginn 13. apríl þegar tryllirinn The Strangers: Prey at Night verður frumsýndur. The Strangers: Prey at Night er eftir Johannes Roberts sem sendi síðast frá sér hákarlatryllinn 47 Meters Down . Myndin segir frá fjög- urra manna fjölskyldu sem er á ferðalagi og hefur fengið vilyrði frá ættingjum sínumumað gista eina nótt í bústað þeirra sem stendur á afskekktum stað. Það fyrsta sem þau taka eftir við komuna þangað er að einhver virðist búa nú þegar í bústaðnum þótt sá sé hvergi sýnilegur. Hjónin og börn þeirra tvö ákveða að sjá hvað verða vill en eftir að hafa hreiðrað um sig uppgötva þau – allt of seint auðvitað – að þau eru gengin í sannkallaða dauðagildru ... Það hvarflar auðvitað ekki að hjónunumMike og Cindy hvað nóttin í bústaðnum sem þau ætla að gista í muni bera í skauti sér. Martin Henderson og Christina Hendricks í hlutverkum sínum í myndinni. Þessir skuggalegu þremenningar koma mikið við sögu í myndinni. The Strangers: Prey at Night Í myndinni eru áhorfendur hreinlega settir í spor fórnarlamb- anna sem hafa um ekkert að velja nema berjast fyrir lífi sínu. Tryllir Punktar .................................................... Veistu svarið? Sá sem leikur son hjónanna í myndinni, Lewis Pullman, er sonur Bills Pullman. Lewis, sem er rétt að hefja leikferilinn, lék einmitt ásamt föður sínum í mynd sem kom út á VOD í síðasta mánuði og fjallaði um frægt tenniseinvígi. Hvaða mynd?
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=