Myndir mánaðarins, maí 2018 - Leigan

10 Myndir mánaðarins Three Billboards Sorg, morð og þrjú skilti Aðalhlutverk: Frances McDormand, Woody Harrelson, Sam Rockwell, Abbie Cornish, John Hawkes, Peter Dinklage og Lucas Hedges Leikstjórn: Martin McDonagh Útgefandi: Sena 115 mín Fargo. 3. maí l Fyrir utan að hljóta frábæra dóma gagnrýnenda hefur Three Bill- boards ... hlotið óteljandi verðlaun og viðurkenningar, þar á meðal BAFTA- og Golden Globe-verðlaunin sem besta mynd ársins og Ósk- arsverðlaunin fyrir leik Frances McDormand og Sams Rockwell. l Bærinn þar sem sagan í myndinni gerist og er kallaður Ebbing er í raun smábærinn Sylva í Norður-Karólínuríki. Margir af bakgrunns- leikurunum sem bregður fyrir í myndinni eru í raun íbúar Sylva. Sjö mánuðum eftir að dóttir Mildred Hayes var myrt þrýtur hana þolinmæðina og grípur til sinna ráða til að fá lögreglu- stjórann Bill Willoughby og menn hans í smábænum Ebbing í Missouri til að rannsaka málið og finna morðingjann. Tekst það eða býr eitthvaðmeira að baki afskiptaleysi Willoughbys? Three Billboards Outside Ebbing, Missouri er eftir írska leikstjórann Martin McDonagh sem á að baki tvær aðrar frábærar bíómyndir, In Bruges sem hann sendi frá sér árið 2008 og Seven Psychopaths sem var frumsýnd 2012. Three Billboards Outside Ebbing, Missouri er að grunni til morðgáta og glæpasaga en um leið kolsvört kómedía rétt eins og fyrri myndir Martins, en hann skrifar einnig handritið. Þess utan þykir myndin afar vel leikin, ekki síst af Frances McDormand sem hér túlkar af sínu alkunna öryggi eina af eftirminnilegustu bíómyndapersónum ársins 2017. Mynd sem enginn ætti að missa af. Frances McDormand leikur aðalpersónuna Mildred sem grípur til óvenjulegra ráða þegar sjö mánuðir eru liðnir frá því að dóttir hennar var myrt og lögreglunni hefur lítið sem ekkert miðað í rannsókninni. Þau Sam Rockwell og Frances McDormand hlutu öll þrenn stóru verð- launin fyrir leik sinn, þ.e. BAFTA-, Golden Globe- og Óskarsverðlaunin. Three Billboards Outside Ebbing, Missouri Lögreglustjóranum í Ebbing (Woody Harrelson) er ekki skemmt yfir athyglinni sem Mildred vekur með aðgerðum sínum til að þrýsta á hann og menn hans. Eða býr kannski eitthvað annað að baki? Veistu svarið? Eins og kemur fram hér til hægri hlaut Frances McDormand Óskarsverðlaunin í ár fyrir hlutverk sitt í myndinni og var það hennar fimmta tilnefning til þessara eftirsóttu verðlauna. En fyrir leik í hvaða mynd hlaut hún einnig Óskarinn árið 1997? Outside Ebbing, Missouri Svört kómedía / Glæpasaga Punktar .................................................... HHHHH - Empire HHHHH - Total Film HHHHH - ReelViews HHHHH - Chicago Sun-Times HHHHH - RogerEbert.com HHHHH - R. Stone HHHHH - Telegraph HHHHH - Guardian HHHH 1/2 - HollywoodReporter HHHH 1/2 - NewYorkPost HHHH - Variety HHHH - CineVue HHHH - TimeOut DVD

RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=