Myndir mánaðarins, maí 2018 - Leigan
29 Myndir mánaðarins 25. maí 117 mín Heimildarmynd eftir Tom Volf um Mariu Callas, líf hennar og viðburðaríkan feril Útgef.: Myndform VOD Heimildarmynd Maria by Callas – Heiða Maria Callas er tvímælalaust þekktasta óperusöngkona sem uppi hefur verið og jafnframt ein sú dáðasta enda bjó hún yfir einstæðum sönghæfi- leikum og hlaut af þeim sökum viðurnefnið „gyðjan“ eða „hin guðdóm- lega“. Í þessari vönduðu mynd er farið yfir feril hennar í máli og myndum og mikil áhersla lögð á að hennar eigin orð og sjónarmið komi skýrt fram. Maria, sem lést langt um aldur fram árið 1977, aðeins 53 ára, fór ekki í felur með að hún væri ekki sama manneskjan fyrir framan sviðsljósin og fyrir aftan þau. Annars vegar væri hún söngkonan Callas og hins vegar hin brothætta Maria sem glímdi við þunglyndi og depurð, en ástæður þess rakti hún m.a til æskuára sinna. Í myndinni er einnig farið yfir persónlegt líf Mariu, samböndin sem hún átti í við hina ýmsu karlmenn og vinskapinn semhúnmyndaði við listafólk um allan heim. „Við erum tvær, Maria og Callas“ Punktar ............................................................................................ l Í myndinni koma fram margir þekktir einstaklingar og má þar nefna Vittorio De Sica, Aristotle Onassis, Pier Paolo Pasolini, Luchino Visconti og Omar Sharif. Nýir teiknimyndaþættir, byggðir á hinni sígildu bók um Heiðu eftir sviss- neska rithöfundinn Johönnu Spyri, en hún kom upphaflega út árið 1881. Bók Johönnu Spyri umHeiðu er þjóðargersemi í Sviss enda eitt þekktasta bókmenntaverk Svisslendinga fyrr og síðar. Sagan er eins og flestir vita um hina sex ára gömlu og munaðarlausu Heiðu sem flytur upp í Alpana til afa síns, en hann er sérvitur einsetumaður, hvumpinn og önugur við flesta sem hann hittir. En koma Heiðu á fljótlega eftir að gjörbreyta viðhorfum hans til lífsins enda getur enginn verið í vondu skapi lengi sem hefur þessa lífsglöðu, skemmtilegu og snjöllu stúlku sér við hlið. Heiða Saga um hugljúfa stúlku sem bætir allt og alla 25. maí 87 mín Teiknimyndir með íslensku tali um hina góðhjörtuðu og síglöðu Heiðu Útgefandi: Myndform l Þessi útgáfa inniheldur þætti 29 til 32 í seríunni en fyrri þættirnir, þættir 1 til 28, ættu flestir að vera enn fáanlegir á VOD-leigunum. Punktar ........................................................................................... VOD Teiknimyndir Þessir nýju teiknimyndaþættir um Heiðu þykja alveg einstaklega vel gerðir.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=