Myndir mánaðarins, maí 2018 - Leigan
6 Myndir mánaðarins Vatnsberinn 20. jan. - 18. feb. Tvíburarnir 21. maí - 21. júní Vogin 23. sept. - 23. okt. Það bendir allt til að þú breytist í svartan ullarsokk upp úr miðjum mánuðinum. Vertu klár þegar kall- ið kemur og mundu að svona ger- ist sem betur fer bara einu sinni. Alvarleg atburðarás sem þú ræður ekkert við og hefur eitthvað að gera með drullupoll leiðir til þess að þú þarft að athuga þinn gang. Láttu ekki alltaf svona asnalega. Samkvæmt stjörnunum verður fólk í vogarmerkinu mjög heppið í maí, sérstaklega í seinni hluta mánað- arins ef það er statt í Hvalfirði, ná- lægt Botnsá, í rigningu og sudda. Hafragrautur er málið hjá sporð- drekum í maí, helst með kanil og rúsínum. Vertu vakandi aðfara- nótt mánudags því þá færðu gest sem þú hefðir ekki viljað missa af. Sporðdrekinn 24. okt. - 21. nóv. Bogmaðurinn 22. nóv. - 21. des. Sumarið er á næsta leiti og það þýðir auðvitað að steingeitur geta farið að hoppa og skoppa um fjöll og firnindi á næstu dögum. Hafðu með þér kókómjólk og sleikipinna. Steingeitin 22. des. - 19. jan. Það bendir allt til að áður en maí er á enda losnir þú við eitt af hegð- unarvandamálunum sem þú hefur glímt við undanfarin ár. Notaðu tækifærið til að æfa upp annað. Krabbinn 22. júní - 22. júlí Þú vinnur ferð til Parísar fyrir tvo þann sextánda maí en týnir svo vinningnum og verður að sætta þig við að eyða sumarfríinu heima hjá þér. Lukkutalan þín er mínus 5. Ljónið 23. júlí - 22. ágúst Þú finnur vinningsmiða með ferð fyrir tvo til Parísar þann sautjánda maí og getur byrjað að pakka strax. Góða ferð og mundu eftir að heilsa upp á Rafael og Mónu Dísu. Meyjan 23. ágúst - 22. sept. Ást og rómantík liggur í loftinu hjá hrútum í maí sem er alveg óskilj- anlegt þegar haft er í huga hvað þeir eru leiðinlegir. Nei, bara grín, hrútar eru mjög skemmtilegir. Fiskarnir 19. feb. - 20. mars Einkennileg en fyrirsjáanleg at- burðarás verður til þess að þú ferð á bak við einn af steinunum ofarlega í Bolafjalli innan tíðar. Hafðu klínexið með og litla skóflu. Hrúturinn 21. mars - 19. apríl Þú dettur í lukkupottinn 8. maí þegar þú kaupir þrjár berjatínur á verði tveggja. Nú er bara að bíða eftir berjunum. Íhugaðu að skrá þig á reiðistjórnunarnámskeið. Nautið 20. apríl - 20. maí Það borgar sig ekki að vera með neitt múður eða ybba gogg þegar maður er staðinn að því að fleygja frá sér rusli á götuna. Taktu það bara upp aftur og skammastu þín. Á síðustu Óskarsverðlaunahátíð hlutu þau Frances McDormand og Sam Rockwell verðlaunin fyrir leik í aðalhlutverki kvenna og aukahlutverki karla og eru þau vel að þeim komin. Hins vegar er því ekki að neita að margir aðdáendur Woodys Harrelson voru að vona að röðin væri komin að honum en Woody hefur þrisvar verið tilnefndur til Óskarsverðlauna og fjórum sinnum til Golden Globe-verðlauna án þess að hljóta þau. Hann hefur jafnframt verið tilnefndur níu sinnum til Emmy-verðlauna og hlotið þau einu sinni, nánar tiltekið árið 1989 fyrir leik sinn sem Woody í sjónvarpsþáttunum Cheers. Það hlutverk leiddi reyndar til þess að hann varð heimsfrægur og segir sagan að koma Woodys í þættina hafi mjög líklega framlengt líf þeirra um nokkur ár enda varð hann fljótlega vinsælasta pers- ónan í þeim. Um leið hefur Woody sjálfur sagt að hlutverk hans í Cheers, þótt það hefði vissulega haft mikla þýðingu fyrir hann, hafi líka á vissan hátt sett honum stólinn fyrir dyrnar því vegna þess hversu vinsæl persóna hans í þáttunumvar áttumenn erfitt með að sjá hann leika einhvern annan. EnWoody átti eins og allir vita eftir að sanna sig og er í dag einhver virtasti og vinsælasti leikari heims. Við hér á Myndum mánaðarins ætlum að spá því að næst þegar Woody Harrelson verður tilnefndur til Golden Globe- eða Óskarsverðlauna þá muni hann hljóta þau, sama hver samkeppnin verður. Munið þennan spádóm! Tommy Lee Jones hóf leikferil sinn árið 1970 þegar hann lék herbergisfélaga Olivers (Ryan O’Neal) í hinni frægu mynd Love Story eftir Arthur Hiller. Hlutverkið gerði ekki mikið fyrir hann, enda smátt, og má segja að hann hafi strögglað næstu tíu árin, eða allt þar til hann sló í gegn í Coal Miner’s Daughter árið 1980 og var m.a. tilnefndur til Golden Globe- verðlauna fyrir hlutverk sitt í henni. Síðan hefur hann haft nóg að gera eins og allir vita, margoft verið tilnefndur til hinna ýmsu verðlauna, þar á meðal fjórum sinnum til Óskarsverðlauna sem hannhefur hampaðeinu sinni, árið 1994 fyrir hlutverk sitt í myndinni The Fugitive . Þetta vita sennilega flestir. Færri vita kannski að eitt af fyrstu hlutverkum Tommys var hvorki í sjónvarpi né kvikmynd heldur í myndbandinu við lag Billys Joel, Piano Man , árið 1973. Í því leikur Tommy Lee Jones eina af persónunum sem Billy syngur um, nánar tiltekið í þriðja erindi textans: „Now Paul is a real estate novelist, who never had time for a wife.“ Þessi Paul sem þarna er nefndur, er leikinn af Tommy Lee Jones. Kíkið á myndbandið. Alec Baldwin fagnaði sextugs- afmæli sínu á dögunum, nánar tiltekið þann 3. apríl. Um leið eru 38 ár liðin frá því hann landaði sínu fyrsta leikhlutverki þegar hann var ráðinn til að leika lækninn Billy Allison Aldrich í sjónvarpssápunni The Doctors sem gengið hafði vel allt frá árinu 1963. Hins vegar var farið að halla undan fæti þegar Alec hóf að leika í þáttunum og svo fór að ákveðið var að hætta framleiðslu þeirra árið 1983. Þetta var auðvitað á engan hátt Alec að kenna því þótt hann þætti svo sem enginn sérstakur leikari hafði hann útlitið með sér og varð upp úr þessu einn vinsælasti piparsveinn Bandaríkjanna, aðeins 25 ára að aldri. Hann átti því ekki erfitt með að fá önnur hlutverk í sjónvarpi en það var ekki fyrr en sjö árum síðar sem hann lék í sinni fyrstu mynd. Árið 1988 hlýtur svo að vera uppáhaldsár Alecs því á því eina ári lék hann í fimm myndum sem allar urðu vinsælar og gerðu Alec að stórstjörnu í kvikmyndaheiminum. Þetta voru myndirnar She’s Having a Baby eftir John Hughes, Beetlejuice eftir Tim Burton, Working Girl eftir Mike Nichols, Married to the Mob eftir Jonathan Demme og Talk Radio eftir Oliver Stone. Við ljúkum þessum dálki hér að þessu sinnimeðþvíaðfagna fimmtugsafmæli myndarinnar The Odd Couple eftir Gene Saks þar sem tveir af vinsælustu gamanleikurum heims á sínum tíma, þeir Jack Lemmon og Walter Matthau, fóru á kostum. Myndin var frumsýnd 16. maí árið 1968.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=