Myndir mánaðarins, júní 2018 - Bíó

6 Myndir mánaðarins Nýjasta íslenska bíómyndin, Kona fer í stríð eftir Benedikt Erlings- son, var frumsýnd í Cannes um miðjan maí og hér á landi 23. maí og það hefur verið ánægjulegt að fylgjast með umsögnum íslenskra kvikmyndaunnenda um hana enda nokkuð samdóma álit allra sem séð hafa að hún sé alveg frábær. Myndin hefur einnig hlotið mjög góða dóma erlendis, m.a. fimm stjörnu dóm hjá gagnrýnanda Variety, en hann segir myndina mikla snilld sem eigi eftir að seljast vel víða um lönd og hrífst af öllu í senn, bæði sögunni, leiknum, allri sviðsetningu, kvikmyndatöku og ekki síst leikstjórn Benedikts. Um leið og við viljum hvetja alla sem eiga það eftir til að sjá þessa einstöku mynd sem fyrst ætlum við að leyfa okkur að spá því að Kona fer í stríð verði næsta framlag Íslands til Óskarsverðlauna og eigi eftir að gera það gott þar. Avengers -myndin Infinity War hefur heldur betur slegið í gegn og fór létt með að setjast í efsta sæti listans yfir vinsælustu myndir ársins á heimsvísu þar sem önnur Marvel-mynd, Black Panther , hafði setið í nokkra mánuði. Þar munar þó mest um aðsókn á myndina utan Bandaríkjanna því þegar þetta er skrifað í lok maí er Black Panther enn á toppnum innan Bandaríkjanna með 690 milljón dollara innkomu á móti 610 milljón dollurum Infinity War . Utan Bandaríkjanna er Infinity War hins vegar með 1,2 milljarða dollara í tekjur á móti 650 milljón dollurum Black Panther . Þessi árangur nægir til að koma Infinity War í fjórða sæti listans yfir tekjuhæstu myndir allra tíma en þar sitja Avatar og Titanic sem fyrr á toppnum ásamt Star Wars: The Force Awakens sem er í þriðja sæti. Nokkrar nýjar stiklur úr væntanlegum myndum kvikmyndahúsanna hafa verið frumsýndar að undanförnu og kennir þar ýmissa grasa eins og alltaf. Við rennum hér yfir þær helstu og byrjum á nýrri Disney-mynd, Christopher Robin , sem verður frumsýnd í ágúst. Hún er eins og heiti hennar gefur til kynna byggð á sögunum um Bangsímon en er samt ný saga sem gerist þegar Christopher, sem Ewan McGregor leikur, er orðinn fullorð- inn fjölskyldumaður. Honum finnst samt sem sitthvað vanti í líf sitt og dag einn þegar hann fær sér sæti í almenningsgarði í London dúkkar Bangsímon skyndilega upp, staðráðinn í að hjálpa sínum gamla og góða, mannlega vini að finna gleðina aftur og sækjast sjálfur eftir aðstoð hans. Myndin er blanda leikinna atriða og tölvuteikninga og lítur geysilega vel út af stiklunni að dæma. Kíkið endilega á hana en leikstjóri er Marc Forster sem á að baki myndir eins og Monster’s Ball , Finding Neverland , Stranger Than Fiction , Quantumof Solace og WorldWar Z . Það er skammt á milli ofurhetju- myndanna þessa dagana en tutt- ugasta myndin í hinum sameinaða Marvel-kvikmyndaheimi verður frum- sýnd í byrjun júlí. Um er að ræða myndina Ant-Man and the Wasp sem er framhald fyrstu myndarinnar um Scott Lang og félaga, en sagan gerist skömmu eftir atburðina í Captain America: Civil War . Scott á sem fyrr fullt í fangi með að samræma föðurhlut- verkið við hlutverk sitt sem hinn öflugi mauramaður, en Scott notar eins og flestir vita tækni vísinda- mannsins Hanks Pym til að bæði smækka sig niður í pöddu- stærð og stækka sig upp í 20 metra risa. Þegar ný ógn steðjar að er ákveðið að dóttir Hanks, Hope, fái sams konar búning svo hún geti tekið þátt í vörninni. Við kynnum þessa mynd nánar í næsta blaði en stiklurnar úr henni eru frábærar og það fer ekkert á milli mála að hér er aðaláherslan lögð á húmorinn. Stærðin skiptir máli Bíófréttir – Væntanlegt Það eru þau Evangeline Lilly og Paul Rudd sem leika Hope van Dyne og Scott Lang, öðru nafni TheWasp og Ant-Man.

RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=