Myndir mánaðarins, júní 2018
15 Myndir mánaðarins Death Wish Hvað myndir þú gera? Aðalhlutverk: Bruce Willis, Vincent D’Onofrio, Elisabeth Shue, Wendy Crewson, Kimberly Elise, Mike Epps, Dean Norris, Camila Morrone og Ronnie Gene Blevins Leikstjórn: Eli Roth Útgefandi: Myndform 108 mín Moonlighting. 7. júní l Death Wish er sjötta bíómynd Íslandsvinarins Elis Roth sem leik- stjóra en hann á að baki myndirnar Cabin Fever , Hostel 1 og 2 , The Green Inferno og Knock Knock sem var frumsýnd 2015. l DeathWish er ekta spennuhasar fyrir eldri en 16 ára en þótt dauðsföllin séu mörg og ofbeldið sé mikið er stutt í húmorinn í ýmsum atriðunum. Eftir að grímuklæddir innbrotsþjófar myrða eiginkonu lækn- isins Pauls Kersey og stórslasa dóttur hans ... og lögreglan segist ekkert geta gert vegna skorts á vísbendingum, ákveður Paul að taka málin í eigin hendur, finna morðingjana og refsa þeim sjálfur með miskunnarlausum dauðadómi og aftöku. Death Wish er byggð á samnefndri skáldsögu Brians Garfield sem kom út árið 1972 og olli talsverðum pólitískum usla fyrir utan að vekja miklar umræður í samfélaginu um hversu langt hinn almenni borgari mætti ganga til að ná fram réttlæti þegar lögreglan gerði það ekki. Svo fór að eftir þessari bók var gerð mynd árið 1974 í leikstjórn Michaels Winner með Charles Bronson í aðalhlutverki og er óhætt að segja að hún hafi ekki síður orðið umtöluð og um- deild á sínum tíma, ekki síst vegna þess að í henni var persóna Pauls Kersey gerð mun ofbeldisfyllri en hún var í raun í bókinni. Þessi nýja mynd sem Eli Roth leikstýrir er að hluta til byggð á hand- riti fyrri myndarinnar en þó hafa nokkrar breytingar verið gerðar á sögunni, t.d. starfar Paul sem læknir á sjúkrahúsi í Chicago í þessari mynd en var arkitekt í New York í þeirri fyrri. Óhætt er samt að segja að eins og í fyrri myndinni mun Paul Kersey hvorki taka mildi- lega á óvinum sínum né sýna þeim hina minnstu miskunn ... Paul Kersey (BruceWillis) ásamt dóttur sinni Jordan og eiginkonunni Lucy, en þær eru leiknar af þeim Camilu Morrone og Elisabeth Shue. Death Wish Spennumynd Punktar .................................................... Veistu svarið? BruceWillis á nú 38 ára leikferil að baki en segja má að hann hafi fyrst slegið í gegn árið 1985 í geysi- vinsælum sjónvarpsþáttum sem m.a. voru sýndir hér á landi þar sem hann lék einkaspæjarann David Addison Jr. Hvað hétu þessir vinsælu þættir? Eftir árásina sem leiddi til dauða eiginkonu Pauls breytir hann sér í eins manns aftökusveit sem sýnir óvinum sínum enga miskunn. Vincent D’Onofrio leikur bróður Pauls, Frank Kersey. DVD VOD
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=