Myndir Mánaðarins, júlí 2018- Bíó
24 Myndir mánaðarins Mamma Mia! Here We Go Again Einu sinni var ... 113 mín Silkwood. l Bæði Benny Anderson og Björn Ulvaeus, B-in tvö í ABBA, eru sagðir koma fram í myndinni í smáhlutverkum, en þeir eru meðframleið- endur hennar ásamt Richard Curtis sem kom einnig að handrits- skrifunum, en Richard gerði hinar frábærumyndir Love Actually , The Boat that Rocked og About Time , auk þess að skrifa handritin að myndunum vinsælu Four Weddings and a Funeral og Notting Hill . l Cher leikur ömmu Sophie í myndinni, og þá móður Donnu, og er þetta fyrsta myndin sem hún leikur í síðan 2010. Heyrst hefur að hún syngi í myndinni eina þekktustu ballöðu ABBA, Fernando, sem virðist reyndar tengjast persónunni sem Andy Garcia leikur! Nokkur ár eru liðin síðan við kynntumstmæðgunumDonnu og Sophie, vinkonum Donnu og mönnunum þremur sem gætu verið barnsfeður hennar. Nú hefur Sophie tekið við rekstri gistiheimilisins og þegar hún verður ófrísk fer hún að hugsa til þess hvernig aðstæðurnar voru árið 1979 þegar hún kom sjálf undir ogmóðir hennar var í svipuðumsporumoghún er í núna. Það eru liðin nákvæmlega tíu ár síðan bíómyndin Mamma Mia! var frumsýnd við miklar vinsældir um allan heim enda einstaklega skemmtilegmynd í alla staði, fjörug, fyndin og byggð á lagatextum nokkurra af vinsælustu lögum sænsku hljómsveitarinnar ABBA. Þann 18. júlí er komið að nýrri ABBA-veislu þar sem allir helstu leik- ararnir úr fyrri myndinni snúa aftur auk nýrra sem leika persónur þeirra árið 1979 þegar Donna hitti þá Bill, Samog Harry í fyrsta sinn og hóf rekstur gistiheimilisins sem Sophie átti eftir að alast upp í ... Amanda Seyfried og Meryl Streep í hlutverkummæðgnanna Sophie og Donnu, en Sophie gengur nú með sitt fyrsta barn undir belti. Það er Lily James sem leikur Donnu á sínum yngri árum og þær Alexa Davies og Jessica Keenan Wynn leika vinkonur hennar, Rosie og Tanyu. Mamma Mia! Here We Go Again Þeir Colin Firth, Stellan Skarsgård og Pierce Brosnan snúa aftur og eiga kannski eftir að aðstoða Sophie við að rifja upp gamla tíma. Veistu svarið? Þetta er í annað sinn sem þær Meryl Streep og Cher leika saman í mynd en það gerðu þær einnig árið 1982 í frægri mynd eftir Mike Nichols og voru fyrir leik sinn í henni báðar tilnefndar til BAFTA-, Golden Globe- og Óskarsverðlauna. Hver var myndin? Gamanmynd Punktar .................................................... Aðalhlutverk: Meryl Streep, Lily James, Amanda Seyfried, Pierce Brosnan, Andy Garcia, Colin Firth, Stellan Skarsgård, Julie Walters, Cher, Jeremy Irvine, Hugh Skinner og Josh Dylan Leikstjórn: Ol Parker Bíó: Laugarásbíó, Smárabíó, Háskólabíó, Sambíóin Álfabakka, Egilshöll og Keflavík, og Borgarbíó Akureyri Frumsýnd 18. júlí
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=