Myndir mánaðarins, júlí 2018
14 Myndir mánaðarins Maze Runner: The Death Cure Spyrjum að leikslokum Aðalhlutverk: Dylan O’Brien, Thomas Brodie-Sangster, Rosa Salazar, Kaya Scodelario, Walton Goggins, Patricia Clarkson, Barry Pepper og Aidan Gillen Leikstjórn: Wes Ball Útgefandi: Síminn og Vodafone Love Actually. 5. júlí l Eins og þeir vita sem lesið hafa bækurnar þá skrifaði höfundurinn James Dashner þrjár bækur í viðbót sem tengjast TheMaze Runner - þríleiknum, annars vegar bækurnar The Kill Order og The Fever Code semgerast fyrir atburði fyrstumyndarinnar, og hins vegar rafbókina The Maze Runner Files , en hún er ekki eiginleg saga heldur er þar að finna upplýsingar og nánari lýsingar á ýmsum atriðum þríleiksins sem gefa lesendum dýpri og betri skilning á atburðarásinni í heild sinni. Ekkert hefur verið ákveðið varðandi kvikmyndun á forsögun- um tveimur en í ljósi vinsælda þríleiksins gæti allt eins af því orðið. Þriðja og síðasta myndin í The Maze Runner -þríleiknum verð- ur gefin út á VOD-leigunum5. júlí en í henni koma öll lokasvör gátunnar fram auk þess semörlög aðalpersónanna ráðast, en þau hafa komið aðdáendum fyrri myndanna verulega á óvart. Myndirnar The Maze Runner (2014) og framhaldið The Scorch Trials (2015) nutu mikilla vinsælda þegar þær komu út enda þrælgóðar myndir, gerðar eftir samnefndum metsölubókum James Dashner. The Death Cure er lokahnykkur sögunnar því nú er komið að því að aðalpersónan Thomas og vinir hans snúi vörn í sókn og freisti þess að frelsa aðra úr ánauðinni sem fyrirtækið WCKD undir stjórn Övu Paige hefur haldið þeim í. En hvað á frelsið eftir að kosta þau? Nokkrar af aðalpersónummyndarinnar leggja hér á ráðin en þær eru leiknar af Nathalie Emmanuel, Katherine McNamara, Jacob Lofland, Thomas Brodie-Sangster, Dylan O’Brien, Rosu Salazar og Dexter Darden. Leikstjórinn Wes Ball sem leikstýrt hefur öllum þremur Maze Runner -myndunum og Dylan O’Brien sem leikur aðalpersónuna Thomas ræða hér saman við tökur á einu atriði The Death Cure . Maze Runner: The Death Cure Þeir Thomas og Newt í einu af hasaratriðum myndarinnar. Veistu svarið? Sá sem leikur Newt í The Death Cure , Thomas Brodie- Sangster, sló í gegn í sinni fyrstu bíómynd sem frumsýnd var árið 2003 þegar hann var aðeins 12 ára. Í þeirri geysivinsælu mynd lék hann á móti Liam Neeson sem lék föður hans. Hver var myndin? Ævintýri / Vísindahasar Punktar .................................................... HHH 1/2 - Entertainm.Weekly HHH 1/2 - NewYorkMagazine HHH 1/2 - NewYorkPost HHH 1/2 - Variety HHH 1/2 - IGN HHH - Empire HHH - N.Y. Times HHH - Los Angeles Times 141 mín VOD
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=