Myndir mánaðarins, júlí 2018

8 Myndir mánaðarins Nei, það kom aldrei til greina og ég er mjög ánægð með að hafa ekki eignast börn. Það gefur mér frelsi. - Helen Miren, að svara því hvort hún sjái eftir að hafa ekki eignast börn. Ég fann oft að fólk bjóst hálft í hvoru við að ég myndi tapa mér vegna frægðarinnar og peninganna. En það gerðist ekki og mun aldrei gerast. - Daniel Radcliffe. Það vantar ekki handritin, skortur á þeim er ekki málið. Hins vegar er skortur á þeim sem vilja fjármagna þessar myndir. Þetta snýst allt um peninga þegar allt kemur til alls. - Zoe Saldana, um skort á handritum með konum í aðalhlutverkum . Uppáhaldsleikmunurinn sem ég á er hnífurinn sem ég notaði í Fatal Attraction . Hann hangir uppi á vegg í eldhúsinu mínu og minnir fólk á að vera ekki að atast í mér þegar ég elda. Í búningadeildinni er það kjóll sem ég klæddist í Dangerous Liaisons og er sá eini sem hefur sýnt mig með alvöru brjóstaskoru. Ég var mjög hreykin af henni. - Glenn Close, sem safnar bæði bún- ingum sem hún hefur klæðst í myndum sínum og leikmunum sem hún hefur notað í þeim. Hún á risastórt safn . Ég hef alltaf mun meiri áhyggjur af næsta hlutverki en því sem ég er að leika þá stundina. Ég óttast alltaf að fá aldrei aftur annað hlutverk. - John C. Reilly . Mitt mottó er að búa ekki til áætlanir, heldur möguleika. - Jennifer Aniston . Hún er algjört meistaraverk, ég segi það bara. Hún er það. Ég er búinn að horfa á hana oft. - Jeff Bridges, um The Big Lebowski . Ég hef alltaf átt því láni að fagna að geta gert það sem ég vil gera. Ég á foreldrum mínum mikið að þakka. - Scarlett Johansson . Ég togast mest að því sem togar í mig. - Morgan Freeman, spurður að því hvernig hlutverk hann vill helst fá. Vandamálið er að það er allt of mikið af fólki við völd sem hefur ekki hug- mynd um hvað það er að gera. - Pierce Brosnan . Allir, og ég meina hver og ein einasta mannvera í heiminum, er að leita að ástinni. Allir þarfnast ástar, en hins vegar er það mjög mismunandi hvað fólk telur vera ást. - Olga Kurylenko . Ég er dauðhrædd við hana. Ég hef að vísu ekki hitt hana en ég er alveg viss um að hún myndi éta mig lifandi. - Megan Fox, um Angelinu Jolie . Ég var mjög ung þegar ég byrjaði að vantreysta sumu fullorðnu fólki og skildi ekki út af hverju ég ætti að bera virðingu fyrir þeim bara út af því að þau voru eldri en ég. Kennarinn minn í barnaskóla neyddi mig til dæmis til að skrifa með hægri hendi þótt ég væri örvhent. Mér fannst það fáránlegt og hef allar götur síðan vantreyst þeim sem ráða yfir öðrum. - Jessica Alba . Ég er heppinn því mér tókst að vinna mér inn svo mikinn pening fyrir tví- tugsaldurinn að hann hefði dugað mér ævina. Það besta við þetta er samt að síðan þá hef ég aldrei þurft að taka að mér hlutverk peninganna vegna heldur get ég einbeitt mér að hlutverkum sem mig langar að taka að mér vegna þess að þau eru vel skrifuð og áhugaverð. - Joseph Gordon-Levitt . Fyrir mér er leikurinn raunveruleiki. Jafnvel þegar ég er ekki að leika þá er ég stöðugt að setja mig í spor annarra persóna í öðrum aðstæðum. Ég er mjög sjaldan ég sjálf, nema kannski snemma á morgnana og seint á kvöldin, enda finnst mér sú tilvera ekki nálægt því eins skemmtileg og sú ímyndaða. - Eva Green . Ég elska hlutabréfaviðskipti. Það er svo mikill ótti og svo mikil græðgi á þessum markaði. Allt verður einhvern veginn bara grænt eða bara rautt. - Josh Brolin . Maður getur ekki breytt fortíðinni. En maður getur alveg auðveldlega forðast að endurtaka hana. - Bruce Willis .

RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=