Myndir mánaðarins, ágúst 2018 - Leigan
22 Myndir mánaðarins Rampage Einhver verður að bjarga heiminum! Aðalhlutverk: Dwayne Johnson, Jeffrey Dean Morgan, Naomie Harris, Malin Akerman, Will Yun Lee og Jack Quaid Leikstjórn: Brad Peyton Útgefandi: Síminn og Vodafone 107 mín San Andreas. 20. ágúst l Fyrsti Rampage -tölvuleikurinn kom út árið 1986 og fram til ársins 2006 voru fimm aðrir leikir gefnir út í seríunni, Rampage World Tour , Rampage Universal Tour , Rampage Through Time , Rampage Puzzle Attack og Rampage Total Destruction . Eins og þeir vita sem spiluðu þessa leiki var górillan George og fleiri dýr sem leikmenn spiluðu með í raun fólk sem hafði stökkbreyst af völdum tilrauna eða vegna einhvers konar eiturs sem illmennin á Scumlabs-rann- sóknarstofunni höfðu framleitt og byrlað þeim. Í myndinni má finna margar skemmtilegar tilvísanir í leikina. George er albínó-górilla í eigu dýrafræðingsins Davis Okoye sem jafnframt er hans besti vinur enda hefur myndast á milli þeirra einstakt vináttusamband. En þegar George veikist af einhverjum ókunnum sjúkdómi sem veldur ofsavexti og miklum skapsveiflum byrja hlutirnir að fara úr böndunum. Rampage sækir efnivið sinn í samnefnda tölvuleikjaseríu þar sem leikmenn stýrðu fólki sem hafði stökkbreyst í risadýr eins og gór- illuna George, úlfinn Ralph og Lizzie, sem er nokkurs konar blanda af risaeðlu og krókódíl, ogmörg önnur, en þessi dýr þrömmuðu um allar grundir og brutu og brömluðu allt sem á vegi þeirra varð í leit að þeim sem báru ábyrgð á óförum þeirra. Myndin fylgir að vísu ekki þeim söguþræði nema að hluta til því hér á Dwayne Johnson sviðið í hlutverki Davis sem þarf að finna mótefni gegn ofsavexti dýranna áður en þau leggja allar borgir Bandaríkjanna í rúst ... Kvikmyndaáhugafólk sem vill sjá hreinræktað ævintýri og hasar þar sem húmorinn er aldrei langt undan ætti að leiga sér þessa! Dwayne Johnson leikur dýrafræðinginn Davis Okoye sem tekist hefur að mynda einstakt vinasamband við górilluna George og Naomie Harris leikur genafræðinginn Kate Caldwell sem gengur í lið með honum. Rampage Davis Okoye er vandi á höndum því um leið og hann þarf að berjast við stökkbreytt risadýr þarf hann að vernda vin sinn, górilluna George. Ævintýri / Hasar / Húmor Punktar .................................................... Veistu svarið? Rampage er þriðja myndin sem þeir Dwayne Johnson og leikstjórinn Brad Peyton gera saman en sú fyrsta var Journey 2: The Mysterious Island sem var frumsýnd 2012. En hvað heitir önnur mynd þeirra sem var frumsýnd sumarið 2015? HHHH - Telegraph HHH 1/2 - Verge HHH 1/2 - H. Reporter HHH - RogerEbert.com HHH - N.Y. Post HHH - Empire HHH - TheGuardian HHH - TimeOut HHH - Total Film VOD
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=