Myndir mánaðarins, ágúst 2018 - Leigan

6 Myndir mánaðarins Vatnsberinn 20. jan. - 18. feb. Tvíburarnir 21. maí - 21. júní Vogin 23. sept. - 23. okt. Þú fitnar talsvert um miðbik mán- aðarins og ættir að huga að því að hætta að borða svona ofsalega mikið. Reyndu frekar að finna gleði í gönguferðum upp á fjöll. Ógiftar konur í tvíburamerkinu sem hafa hug á að festa ráð sitt munu ekki gera það í ágúst. Vertu bara fegin því það verða fleiri og betri fiskar í ánni í september. Þú tekur mikilvæga ákvörðun um framtíð þína en hættir svo við eins og alltaf áður og heldur bara áfram í sama ruglinu. Lærðu að brjóta saman segl þegar þú hefur tíma. Þú færð skyndilega löngun til að fara að rækta uglur en áttar þig svo ekki á hvar þú átt að byrja. Íhugaðu í staðinn að leggjast yfir leiðbeiningabók um rafskálasmíði. Sporðdrekinn 24. okt. - 21. nóv. Bogmaðurinn 22. nóv. - 21. des. Þú leggur land undir fót í ágúst og ferð til Selfoss. Haltu þínu striki hvað sem á gengur og hlustaðu ekki á manninn sem reynir að fá þig til að taka nagladekkið undan. Steingeitin 22. des. - 19. jan. Við sjáum tjald í framtíð þinni í ágúst og jafnvel fleiri en eitt. Svo sjáum við gasgrill og handklæði og stígvél og ullarsokka og bleytu. Láttu ekki alltaf svona asnalega. Krabbinn 22. júní - 22. júlí Einhver sem þú þekkir vel kemur að máli við þig upp úr átjánda ágúst og segir þér leyndarmál sem þig hefur alltaf langað til að vita hvað var. Mundu eftir hrærivélinni. Ljónið 23. júlí - 22. ágúst Haltu þig heima við í ágúst og byrjaðu að strauja jólapappírinn frá því í fyrra svo hann verði sléttur og fínn fyrir næstu jól. Reyndu að muna hvað þú gerðir við bjölluna. Meyjan 23. ágúst - 22. sept. Reyndu að átta þig á kjarna málsins og hættu að spóla alltaf í sömu hjólförunum. Þú hlýtur að geta fundið önnur hjólför eins og allir aðrir. Passaðuþig á nibbunum. Fiskarnir 19. feb. - 20. mars Allir sem eru í fiskamerkinu munu fá tækifæri þann 20. ágúst til að stórbæta líf sitt eða að minnsta kosti mála einn vegg hjá sér. Það myndi flokkast sem góð byrjun. Hrúturinn 21. mars - 19. apríl Ekki velta þér of mikið upp úr fortíðinni nema þú ætlir að baka pönnukökur. Mundu að það er miklu betra að ná markmiðum sín- um að lokum en að gera það ekki. Nautið 20. apríl - 20. maí Karlar í bogmanninum sem eru að leita sér að nýrri vinnu ættu að tékka á auglýsingu sem birtist í Fréttablaðinu 17. ágúst, ofarlega á blaðsíðu 11. Ekki klikka á þessu. 1. ágúst: Jason Momoa, 39 ára 7. ágúst: Charlize Theron, 43 ára 11. ágúst: Chris Hemsworth, 35 ára 17. ágúst: Robert De Niro, 75 ára 25. ágúst: Blake Lively, 31 árs 2. ágúst: SamWorthington, 42 ára 8. ágúst: Dustin Hoffman, 81 árs 14. ágúst: Mila Kunis, 35 ára 20. ágúst: Andrew Garfield, 35 ára 26. ágúst: Melissa McCarthy, 48 ára 4. ágúst: Greta Gerwig, 35 ára 9. ágúst: Anna Kendrick, 33 ára 15. ágúst: Jennifer Lawrence, 28 ára 22. ágúst: KristenWiig, 45 ára 28. ágúst: Jack Black, 49 ára 6. ágúst: Vera Farmiga, 45 ára 10. ágúst: Antonio Banderas, 58 ára 16. ágúst: Steve Carell, 56 ára 24. ágúst: Rupert Grint, 30 ára 30. ágúst: Cameron Diaz, 46 ára

RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=