Myndir mánaðarins, ágúst 2018 - Leigan
8 Myndir mánaðarins Lífið er allt of stutt til að eyða því í sambönd sem eru hætt að virka. - Anna Faris, sem skildi nýlega við Chris Pratt eftir 9 ára sambúð. Mér hafa alltaf fundist breskir karl- menn spennandi. Sá mest spennandi sem ég hef hitt er Ewan McGregor. Ég hef reyndar bara hitt hann einu sinni en hann var æðislegur þótt hann væri frekar lágvaxinn. - Eva Longoria. Ég var verulega langt niðri út af því að Poseidon mislukkaðist og hélt að enginn myndi ráða mig aftur. Þá kom Alec Baldwin til mín og sagði mér að það væri ekki til sá leikari sem hefði ekki eða myndi ekki ganga í gegnum það sama. Aðalatriðið væri að láta mistökin aldrei sjást utan á manni. - Josh Lucas . Ég er ekki einn af þeim sem setjast niður og fá snjallar hugmyndir. Ég tek hins vegar ágætlega við snjöllum hugmyndum og finnst gaman að vera hluti af því að þær séu framkvæmdar. Ég held reyndar að sem leikari sé það bara gott að ég sé ekki að fá einhverjar hugmyndir ofan á þær hugmyndir sem ég hef fengið frá öðrum. Mínar viðbætur myndu bara skemma fyrir. - Mark Rylance . Nei, ég er ekki með Twitter því ég veit að mín fyrstu viðbrögð við einhverju eru yfirleitt ekki þau réttu. Ef ég væri með Twitter og hefði alltaf skellt inn mínum fyrstu viðbrögðum við öllu þá værir þú ekki að taka viðtal við mig. - Olivia Cooke . Nei, ég á mér enga drauma um að vinna með einhverjum sérstökum. Ég er bara krakki enn þá og ég leik með þeim sem vilja leika með mér. - Ty Sheridan . Ég reyni að gleyma fortíðinni eins fljótt og ég get og með árunum hef ég orðið betri og betri í því. Þannig að ekki spyrja mig ummyndir sem ég hef leikið í eða biðja mig að rifja eitthvað upp. Ég er búin að gleyma öllu slíku. Spurðu mig frekar um framtíðina. Ég hef ótakmarkaðan áhuga á henni. - Leslie Mann . Fólk virðist halda að vegna þess að ég er búin að vera leikkona allt mitt líf viti ég eitthvað um kvikmyndir. Staðreyndin er að ég veit nákvæmlega ekkert um kvikmyndir, eða hver gerði hvað eða í hverju hver var. Ég geymi þá reynslu til efri áranna. - Elle Fanning . Ég græt yfir öllumögulegu. Falleg aug- lýsing frá líftryggingafélagi fær mig til dæmis til að gráta í nokkra daga. - Ike Barinholtz . Ég er ekki að reyna að svara neinu í myndunum sem ég geri. Ég er miklu frekar að reyna að finna spurningar. - Jason Reitman . Já, það fyrsta sem ég geri á morgnana er líkamsrækt. Ég rúlla mér fram af rúminu og beint í armbeygjurnar. - Lily James . Ég er einn af þeim sem verða brjálaðir eftir vikudvöl í Los Angeles. - Matthew Goode . Við erum búin að vinna saman svo lengi að samband okkar er fyrir löngu orðið eins og samband systkina. - Chris Evans, um Scarlett Johansson . Það er bara til tvenns konar fólk, annars vegar þeir sem hefðu viljað fara út að borða með John Lennon og hins vegar þeir sem hefðu viljað fara út að borða með Paul McCartney. - Paul Bettany . Já, það er ein tegund af hlutverkum sem ég tek ekki aðmér. Ég er hræðileg í spuna. Ég verð að hafa handrit. - Elizabeth Olsen . Hvað var það sem fékk mig til að taka hlutverkið aðmér? Sko ... þegar maður er átján ára og síminn hringir og Ron Howard er á hinum endanum að bjóða manni hlutverk í næstu mynd sem hann er að fara að gera þá bara segir maður bara já. Ég þurfti ekkert að vita meira til að taka ákvörðun. - Tom Holland . Það skiptir engu máli hvar maður er staddur í lífinu því maður er staddur nákvæmlega þar sem lífsgangan leiddi mann. Næsti áfangastaður er alltaf upp, aldrei niður, sama á hvaða stoppistöð maður er. - Oprah Winfrey .
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=