Myndir mánaðarins, september 2018

22 Myndir mánaðarins Life of the Party – Isle of Dogs 24. september 102 mín Aðalhl.: Melissa McCarthy, Molly Gordon, Gillian Jacobs og Maya Rudolph Leikstj.: Ben Falcone Útgef.: Síminn og Vodafone VOD Gamanmynd Þegar eiginmaðurinn fer framá skilnað ákveður Deanna að byrja upp á nýtt í orðsins fyllstu merkingu og halda áfram í framhaldsskólanum sem hún hætti í á sínum tíma fyrir hjónabandið og vegna þess að hún var ófrísk. Grín og gaman og kostulegar uppákomur er það sem áhorfendur mega búast við í þessari nýjumyndmeð gríndrottningunni MelissuMcCarthy í aðalhlutverki. Hún leikur hér konu sem er staðráðin í að láta skilnað við eiginmanninn verða til góðs þrátt fyrir allt og innritar sig í sama skólann og hún var í þegar þau hittust á sínum tíma og eignuðust dótturina Maddie. Þar á hún svo eftir að setja mark sitt á skóla- lífið, enda býr hún að mikilli reynslu og þekkingu sem aðrir nemendur hafa ekki ... Aftur í skólann Það er hin fjallhressa Melissa McCarthy sem leikur hina fjallhressu Deönnu. l Life of the Party er þriðja myndin sem eiginmaður Melissu McCarthy, Ben Falcone, leikstýrir með henni í aðalhlutverki en hinar tvær voru Tammy og The Boss . Þau skrifuðu einnig handrit þessara mynda saman. Þess má geta að Ben leikur einnig hlutverk Uber-leigubílstjórans Dales í myndinni. l Tónlistarkonan Christina Aguilera kemur fram í Life of the Party sem hún sjálf og syngur eitt lag. l Hermt er að foreldrar Deönnu í myndinni séubyggðir á raunverulegum foreldrumMelissuMcCarthy, enda bera þeir sömu nöfn, Michael og Sandy. Punktar ............................................................................................ 27. september 102 mín Aðalhlutverk/talsetning: Bryan Cranston, Edward Norton og Koyu Rankin Leikstj.: Wes Anderson Útg.: Síminn og Vodafone VOD Ævintýri Nýjasta mynd Wes Anderson ( The Grand Budapest Hotel , Moonrise King- dom, Rushmore ) er meistaraverk sem allt kvikmyndaáhugafólk ætti að sjá. Myndin gerist eftir 20 ár þegar hundaplága í borginni Megasaki í Japan leiðir til þess að borgarstjórinn Kobayashi ákveður að banna alla hunda og lætur flytja þá sem eru í borginni til Rusleyju þar sem þeirra bíður lítið annað en að veslast upp. Þegar ungur piltur að nafni Atari kemur út í eyjuna í leit að hundinum sínum Spot tekur atburðarásin ófyrirsjáanlega og óvænta stefnu sem á eftir að breyta öllu ... Fylgdu þínum eigin reglum Höfundur myndarinnar, Wes Anderson, ásamt mörgum af þeim persónum sem koma við sögu í þessari skemmtilegu og frumlegu mynd . l Fyrir utan þá Bryan Cranston, Koyu Rankin og Edward Norton sem nefndir eru í aðalhlutverkum myndarinnar tala fjölmargir aðrir þekktir leikarar fyrir persónur myndarinnar og má þar nefna Bill Murray, Jeff Goldblum, Gretu Gerwig, Frances McDormand, Scarlett Johansson, F. Murray Abraham, Harvey Keitel, Tildu Swinton, Ken Watanabe, Fisher Stevens, Liev Schreiber, Courtney B. Vance og Anjelicu Huston. l Enskt nafn myndarinnar er orða- leikur. Prófið að segja það hratt! Punktar ............................................................................................ HHH 1/2 - New York Post HHH 1/2 - Chicago Sun-Times HHH 1/2 - E.W. HHH 1/2 - Los Angeles Times HHH 1/2 - Variety HHH - Chicago Tribune HHHHH - Hollyw. Reporter HHHHH - N.Y. Magazine HHHH 1/2 - IGN HHHH 1/2 - Entert. W. HHHH 1/2 - N.Y. Post HHHH 1/2 - Rolling Stone HHHH - N.Y. Times HHHH - Empire HHHH - Variety HHHH - CineVue HHHH - The Telegraph HHHH - Time Out HHHH - The Guardian

RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=