Myndir mánaðarins, október 2018

6 Myndir mánaðarins Vatnsberinn 20. jan. - 18. feb. Tvíburarnir 21. maí - 21. júní Vogin 23. sept. - 23. okt. Það verður mjög lítið við að vera hjá þér í október og sennilega eyð- irðu mánuðinum bara í að horfa út um gluggann á grámyglu hvers- dagsins. Láttu þér ekki verða kalt. Einhver sem þú hittir í fyrra og talaðir lítillega við kaupir sér nýjan bíl þann fimmtánda, sennilega Skoda. Fleira merkilegt mun ekki gerast hjá þér á næstunni. Þú hefur aldrei verið góð(ur) í að ráða gátur og það á ekki eftir að breytast í október. Fjárfestu í skemmtilegu leikjabókinni og fáðu einhvern með þér í reiptog. Nú þegar vetur konungur er á næsta leiti þarftu eins og áður að kaupa þér ný kerti í bílinn og rúðupiss sem frýs ekki fyrr en við 17 gráður. Gerðu þetta í fyrramálið. Sporðdrekinn 24. okt. - 21. nóv. Bogmaðurinn 22. nóv. - 21. des. Það verður allt brjálað að gera hjá þér fram eftir mánuðinum og því ættir þú að huga að því að sleppa, eða a.m.k. að fresta þessari utan- landsferð sem þú varst að plana. Steingeitin 22. des. - 19. jan. Heppnin verður loksins með þér í október þegar þú finnur plastpoka með bláberjum. Taktu þér tak og ákveddu að byrja alla daga héðan í frá á a.m.k. fimmtíu armbeygjum. Krabbinn 22. júní - 22. júlí Nú er rétti tíminn til að fjárfesta, sérstaklega fyrir fólk eins og þig sem hefur ekkert vit á peningum. Ekki gleyma að það er mikið járn í lifrarpylsum og járnrörum. Ljónið 23. júlí - 22. ágúst Þú ert eitthvað orkulaus þessa dag- ana og því mæla stjörnurnar með að þú fáir þér dálítið bensín að drekka. Ekki samt alvöru bensín, þær eru alls ekki að meina það. Meyjan 23. ágúst - 22. sept. Nú þegar Júpíter nálgast sporð- drekamerkið líður þér eins og eitthvað sé að vaxa innan í þér og muni að lokum brjótast út og valda mikilli hræðslu í hverfinu. Fiskarnir 19. feb. - 20. mars Einhver er að hugsa um að kaupa litríka peysu handa þér í jólagjöf en hættir við þegar hann sér hvað hún kostar og ákveður frekar að gefa þér ísskeið. Sýndu þakklæti. Hrúturinn 21. mars - 19. apríl Fólk í nautsmerkinu sem hefur ekki fest ráð sitt mun samkvæmt stjörnunum gera tilraun til þess þann tíunda. Reyndu að vera ekki alltaf svona svakalega fýluleg(ur). Nautið 20. apríl - 20. maí Það er farið að styttast í jólin og því ráðleggja stjörnurnar þér að fara strax í að skrifa niður allt sem þú þarft að gera svo þú gleymir engu eins og í fyrra og hitteðfyrra. Þeir Benicio Del Toro og James Brolin, sem leika saman í Sicario: Day of the Soldado , hafa í raun verið vinir í áratugi. Benicio heldur með Fulham í ensku deild- inni og lék árið 1989 yngsta glæpamanninn sem James Bond hefur þurft að takast á við. Það var í myndinni Licence to Kill . Aðrir leikarar sem vitað er að halda með Fulham eru Elizabeth Hurley, Lily Taylor, Pierce Brosnan, Hugh Grant, Hugh Laurie og Daniel Radcliffe. Hermt er að Michael Jackson hafi einnig haldið með Fulham en við seljum það ekki dýrara en við keyptum. Þeir James Corden og Dominic Cooper eru æskuvinir og bjuggu saman á tímabili. Skírnarnafn Saoirse Ronan er á írsku borið fram eins og „sír-sja“. Þegar hún er í Bandaríkjunum notar hún samt frekar framburðinn „sur-sju“. Við vitum ekki hvers vegna. Winona Ryder er í raun ljóshærð. Þegar hún lék í sinni fyrstu mynd bað leikstjórinn hana um að lita hárið á sér dökkt og eftir það hefur hún alltaf verið dökkhærð fyrir utan þegar hún lék í myndinni Edward Scissorhands . Þá notaði hún sinn náttúrulega háralit. Domhnall Gleeson er eini leikarinn (svo við vitum til) sem náð hefur þeim árangri að allar fjórar myndirnar sem hann lék í á einu ári (2015) voru tilnefndar til Óskarsverðlauna. Þetta voru myndirnar The Revenant , Ex Machina , Star Wars: The Force Awakens og Brooklyn . Þess má geta að í réttum framburði á skírnarnafni hans heyrist m-ið ekki heldur er nafnið borið fram eins og„dó-nall“ Bryce Dallas Howard steinhætti að neyta dýraafurða árið 2005 eftir að hún sá myndina Earthlings sem fjallar m.a. um hvernig farið er með dýr á eldisstöðvum.

RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=