Myndir mánaðarins, nóvember 2018 - Leigan

14 Myndir mánaðarins Ocean’s 8 Af því að þær geta það Aðalhlutverk: Sandra Bullock, Cate Blanchett, Anne Hathaway, Dakota Fanning, Olivia Munn, Helena Bonham Carter, Katie Holmes, Matt Damon, Mindy Kaling, Sarah Paulson, Awkwafina, Rihanna, James Corden og Richard Armitage Leikstjórn: Gary Ross Útgefandi: Síminn og Vodafone 110 mín Gravity. 5. nóvember l Leikstjóri myndarinnar, Gary Ross, samdi einnig söguna og hand- ritið, en hann á að baki margar góðar myndir eins og Pleasantville , Seabiscuit , Big , The Hunger Games og Free State of Jones , annað hvort sem leikstjóri, sögu- eða handritshöfundur, eða allt í senn. l Í myndinni koma fram margar þekktar persónur, s.s. Serena Willi- ams, Kendall og Kylie Jenner, Kim Kardashian, Olivia Munn, Jaime King, Hailey Baldwin, Katie Holmes, Heidi Klum og Adriana Lima. Eftir að Debbie Ocean losnar úr fangelsi á reynslulausn vegna góðrar hegðunar og loforðs um að skokka mjóa veginn hér eftir byrjar hún strax að skipuleggja næsta rán og hóa í sam- verkakonur sínar sjö sem óhætt er að segja að séu hver ann- arri hæfileikaríkari á hinum ýmsu og fjölbreyttustu sviðum. Ocean’s 8 er svokallað „spin-off“ myndarinnar Ocean's Eleven sem Steven Soderbergh gerði og frumsýnd var árið 2001 við miklar vinsældir enda einstaklega skemmtileg í alla staði. Höfuðpaur 11- gengisins var Danny Ocean sem George Clooney lék svo eftirminni- lega og í þessari mynd er það systir hans Debbie sem sér um að skipuleggja rán sem á ekki að vera hægt að framkvæma. Við förum ekki nánar út í um hvað þetta rán snýst til að skemma ekkert fyrir væntanlegum áhorfendum en sá eðalleikhópur sem kemur fram í þessari skemmtilegu mynd er einn og sér full ástæða til að sjá hana! Bíræfið rán sem í fyrstu virðist ómögulegt að framkvæma þarf að skipuleggja vel og í smáatriðum. Debby Ocean er sérfræðingur í því. Cate Blanchett, Helena Bonham Carter og Sandra Bullock í hlutverkum sínum í myndinni sem þær Lou, Rose og Debbie. Ocean’s 8 Glæpagrín / Flétta Punktar .................................................... Veistu svarið? Eins og kemur fram hér í kynningunni leikur Sandra Bullock Debbie Ocean sem er systir Dannys sem George Clooney lék í Ocean’s Eleven árið 2001. En í hvaða sjöföldu Óskarsverðlaunamynd léku þau Sandra og Georg hvort á móti öðru árið 2013? Konurnar sjö sem Debby Ocean fær til liðs við sig eiga það sam- eiginlegt að búa yfir miklum hæfileikum, hver á sínu sviði. VOD HHHH 1/2 - IGN HHHH - The Playlist HHHH - Time Out HHHH - Slate HHH 1/2 - Observer HHH 1/2 - Rolling Stone HHH 1/2 - RogerEbert.com HHH 1/2 - Entertainment Weekly HHH 1/2 - L.A. Times HHH 1/2 - N.Y. Times HHH 1/2 - Variety

RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=