Myndir mánaðarins, desember 2018 - Leigan

10 Myndir mánaðarins Kona fer í stríð Stríð eru af öllum gerðum Aðalhlutverk: Halldóra Geirharðsdóttir, Davíð Þór Jónsson, Magnús Tryggvason Eliassen, Ómar Guðjónsson og Jóhann Sigurðsson Handrit: Benedikt Erlingsson og Ólafur Egilsson Leikstjórn: Benedikt Erlingsson Útgefandi: Sena 96 mín Tár úr steini. 6. desember l Kona fer í stríð hefur gert það gott á erlendum kvikmyndahátíðum á árinu og hlotið fjölda verðlauna, nú síðast LUX-verðlaunin (kvik- myndaverðlaun Evrópuþingsins) þann 14. nóvember, en þau eru veitt myndum sem skarað hafa fram úr og tengjast mikilvægum umræðum um málefni líðandi stundar, eins og t.d. náttúruvernd. l Myndin hlaut enn fremur kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs í byrjun nóvember en í rökstuðningi verðlaunanefndarinnar sagði m.a. að Kona fer í stríð sé „frábær kvikmynd og leiftrandi skemmti- leg í meðferð sinni á hápólitísku viðfangsefni, svo og á einkalífi 48 ára gamallar konu sem er hin óvænta hasarhetja myndarinnar. “ l Kona fer í stríð er framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna 2019. Halla (Halldóra Geirharðsdóttir) er kórstjóri á fimmtugsaldri sem ákveður að lýsa yfir sínu eigin stríði gegn allri mengandi stóriðju í landinu. Hún gerist skemmdarverkamaður og er til­ búin að fórna öllu fyrir móður jörð og hálendi Íslands, allt þar til munaðarlaus stúlka frá Úkraínu stígur inn í líf hennar. Að bjarga einu barni er að bjarga heiminum. En er það nóg? Kona fer í stríð er önnur bíómynd Benedikts Erlingssonar sem leik- stjóra en sú fyrri var myndin Hross í oss sem sló í gegn haustið 2013, hlaut síðan sex Edduverðlaun af fjórtán tilnefningum, þ. á m. sem besta mynd ársins, auk toppdóma gagnrýnenda og óteljandi verðlauna á alþjóðlegum hátíðum. Kona fer í stríð kemur út á DVD og á VOD-leigunum6. desember og það er full ástæða til að hvetja unnendur íslenskrar kvikmyndagerðar að missa ekki af henni ... Halldóra Geirharðsdóttir leikur kórstjórann Höllu sem ákveður að segja stóriðjunni stríð á hendur fyrir hönd náttúrunnar og leggja allt sitt í baráttuna, íslenskum yfirvöldum til lítillar skemmtunar. Í miðri baráttunni fyrir náttúruna gengur ættleiðing Höllu á ungri stúlku frá Úkraínu í gegn og á koma hennar eftir að hafa mikil áhrif á allar þær ákvarðanir sem Halla þarf að taka um framtíðina. Kona fer í stríð Hasar Punktar .................................................... Veistu svarið? Eins og alþjóð veit á Benedikt Erlingsson, leikstjóri Kona fer í stríð , einnig langan leiklistarferil að baki á sviði og í ýmsum myndum auk þess að gera það gott í grínþáttunum Fóstbræður . En hver var fyrsta bíómyndin sem hann lék í og var frumsýnd 1995? HHHHH - Variety HHHH 1/2 - The Globe and Mail HHHH - Hollywood Reporter HHHH - Screen Intern. VOD DVD

RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=