Myndir mánaðarins, febrúar 2019 - Leigan
12 Myndir mánaðarins Johnny English Strikes Again Treystu innsæinu! Aðalhlutverk: Rowan Atkinson, Olga Kurylenko, Emma Thompson, Ben Miller, Jake Lacy, Miranda Hennessy, Pippa Bennett-Warner og Adam James Leikstjórn: David Kerr Útgefandi: Myndform 90 mín 7. febrúar l Í myndinni koma fram í aukahlutverkum nokkrir gamlir og góðir breskir leikarar, þ. á m. þeir Charles Dance, Michael Gambon og Edward Fox, en þeir eiga það allir sameiginlegt ásamt Olgu Kuryl- enko og Rowan Atkinson að hafa leikið í James Bond -myndum. l Bíllinn magnaði sem Johnny English ekur í myndinni og er af gerð- inni Aston Martin V8 Vantage Classic er í raun í eigu Rowans Atkinson. Þegar voldug og stórhættuleg glæpasamtök komast yfir raun- veruleg nöfn allra njósnara bresku leyniþjónustunnar kemur ekkert annað til greina en að kalla í snjallasta njósnara heims og fá hann til að fara í málið. Sá maður heitir Johnny English. Já, Johnny English mætir hér á svæðið á ný til að ganga á milli bols og höfuðs á hættulegustu óvinum Bretlands. Að vísu er hann í upphafi myndarinnar sestur í helgan stein eftir áratugaþjónustu við ættjörðina og farinn að dunda sér við aðra hluti en þar sem allir aðrir njósnarar leyniþjónustunnar eru úr leik var einfaldlega ekki um aðra að ræða. Að sjálfsögðu skorast Johnny ekki undan kallinu frekar en fyrri daginn og hefur strax að rannsaka málavöxtu ásamt dyggum aðstoðarmanni sínum, Bough. Grunurinn beinist fljótlega að hakkaragengi í Suður-Frakklandi og hinni fögru Ophelíu sem virðist vera höfuðpaur þess og aðalskipuleggjandi. Hvort það sé rétt eða ekki kemur í ljós því ef einhver getur komist til botns í dularfullum málum eins og þessum þá er það Johnny English ... Rowan Atkinson er engum líkur og fer ávallt létt með að kæta áhorfendur með kostulegum töktum og svipbrigðum, svo ekki sé talað um rannsóknaraðferðirnar sem Johnny English beitir! Johnny English Strikes Again Gamanmynd Punktar .................................................... Never Say Never Again. Veistu svarið? Rowan Atkinson er auðvitað einna best þekktur fyrir að túlka titilpersónurnar Bean og Blackadder í samnefndum sjónvarpsþáttum en á einnig langan kvikmyndaferil að baki sem hófst árið 1983 þegar hann lék í James Bond -mynd. Hvaða mynd? Emma Thompson leikur forsætisráðherra Bretlands sem verður að láta til sín taka þar sem MI-6 leyniþjónustan er í lamasessi. DVD
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=