Myndir mánaðarins, febrúar 2019 - Leigan

17 Myndir mánaðarins The Girl in the Spider’s Web – Where Hands Touch Þetta er hin átján ára gamla Kaia Gerber sem er tiltölulega nýbyrjuð í módelbransanum en flestir spá að sé upprennandi ofurfyrirsæta. Eins og margir sjá strax á hún hæfileikana og útlitið ekki langt að sækja enda eru báðir foreldrar hennar heimsfrægar fyrrverandi fyrir- sætur, þau Cindy Crawford og Rande Gerber. Hin 15 ára Leyna á hvíta móður og svartan föður og hefur vegna litarháttar síns þurft að glíma við fordóma frá æsku þótt hún sé þýsk í húð og hár. Þegar hún og sonur hers- höfðingja í þýska hernum fella hugi saman stefna þau um leið lífi sínu í stórhættu. Where Hands Touch er áhrifarík ástarsaga sem margir hafa hrifist af og býður um leið upp á mikla spennu enda gerist hún í Berlín þegar heimsstyrjöldin síðari er í hámarki og gyðinga- ofsóknir nasista eru í algleymingi. Mitt í þess- umóróaheldur lífið samt áframhjáunglingum landsins sem hafa ekki enn áttað sig á hvert stefnir og skilja ekki til fulls hvers vegna það gæti leitt til lífshættu fyrir þau að verða ást- fangin, hvað þá ef þau opinbera þá ást. Það eru þau Amandla Stenberg og George MacKay sem leika parið ástfangna, Leylu og Lutz, en þau eru bæði talin á meðal efnileg- ustu leikara ársins og þykja sýna hér að sú spá er ekki ástæðulaus. Myndin er sú fjórða sem leikstjórinn og handritshöfundurinn Amma Asante gerir en hinar þrjár myndirnar, A Way of Life , Belle og A United Kingdom , hlutu allar glimrandi góða dóma gagnrýnenda. Stríð/rómantík Ekki láta bugast 122 mín VOD Aðalhlutverk: Amandla Stenberg, Christopher Eccleston, George MacKay, Abbie Cornish og Tom Goodman Hill Leikstjórn: Amma Asante Útgefandi: Sena 14. febrúar 14. febrúar 117 mín Aðalhl.: Claire Foy, Sverrir Guðnason, LaKeith Stanfield og Sylvia Hoeks Leikstjórn: Fede Alvarez Útgefandi: Sena VOD Spenna/hasar Þau Lisbeth Salander og blaðamaðurinn Mikael Blomkvist hittast á ný og takast nú á við flókið glæpamál og ráðgátu þar semmiskunnarlausir morð- ingjar, tölvuhakkarar og spilltir útsendarar yfirvalda koma við sögu ásamt tvíburasystur Lisbeth, Camillu, sem reynist hennar erfiðasti andstæðingur. The Girl in the Spider’s Web er gerð eftir fjórðu bókinni um þau Lisbeth Salander og Mikael Blomkvist en hún er eftir rithöfundinn David Lagercrantz sem var fenginn til að halda áfram með söguna um þessar persónur sem Stieg Larsson skapaði áður en hann féll frá árið 2005. Bókin heitir á íslensku Það sem ekki drepur mann en við förum ekki nánar út í söguna hér af tillitssemi við þá sem hafa hvorki lesið hana né sáu myndina í bíó enda er atburðarásin uppfull af vægast sagt óvæntum vendingum og fléttum sem langskemmtilegast er að láta koma sér á óvart ... Fortíðin gleymir engu Enska leikkonan Claire Foy hefur nú tekið við hlutverki Lisbeth Salander. l Með hlutverk Lisbeth í þetta sinn fer enska leikkonan Claire Foy og í hlut- verki Mikaels er nú Íslendingurinn Sverrir Guðnason sem síðast túlkaði Björn Borg í myndinni Borg McEnroe . Um leikstjórnina sá svo Fede Alvarez sem gerði m.a. myndina Evil Dead og sendi síðast frá sér spennutryllinn magnaða, Don’t Breathe . l Þess má geta að til stendur að kvik- mynda fimmtu bókina, Mannen som sökte sin skugga , en hún nefnist Stúlk- an sem gat ekki fyrirgefið á íslensku. Punktar .................................................................. HHHH 1/2 - Observer HHHH - Film Journal HHHH - The Wrap HHH 1/2 - Rolling Stone HHH 1/2 - IGN HHH - E.W. HHH - Empire

RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=