Myndir mánaðarins, febrúar 2019 - Leigan
24 Myndir mánaðarins Bad Times at the El Royale Sjö einstaklingar – sjö leyndarmál Aðalhlutverk: Chris Hemsworth, Jon Hamm, Dakota Johnson, Jeff Bridges, Nick Offerman, Cynthia Erivo, Katharine Isabelle, Lewis Pullman og Alvina August Leikstjórn: Drew Goddard Útgefandi: Síminn og Vodafone 140 mín 21. febrúar l Leikstjóri og handritshöfundur myndarinnar er Drew Goddard sem hefur það m.a. á afrekaskránni að hafa skrifað handrit mynd- anna The Martian , Cloverfield og WorldWar Z auk handrits myndar- innar The Cabin in the Woods sem hann leikstýrði einnig. Sjö gerólíkir einstaklingar, sem allir hafa einhverju að leyna, hittast á El Royale-hótelinu viðTahoe-vatnþar semskuggaleg fortíðin svífur yfir vötnum. Á einum sólarhring fær allt þetta fólk tækifæri til að gera yfirbót – áður en allt fer til helvítis. Sagan í Bad Times at the El Royale er ein af þessum sögum sem lang- skemmtilegast er að vita semminnst umáður enhorft er ámyndina. Ástæðan er auðvitað að hún inniheldur margar fléttur og að engin af þeim persónum sem við sögu koma eru allar þar sem þær eru í fyrstu séðar. Nóg er að vita að myndin gerist á einum sólarhring og segir frá sjö einstaklingum sem hittast á El Royale-hótelinu, en það stendur þannig á ríkjamörkum Nevada og Kaliforníu að helmingur herbergjanna er Nevada-megin en hinn helmingurinn Kaliforníu- megin. Gestir geta sem sagt valið í hvoru ríkinu þeir gista. Ekki líður á löngu uns það verður ljóst að a.m.k. einhverjir af gestunum eru að villa á sér heimildir og að allir hafa þeir eitthvað að fela. Hvað það er kemur svo smámsamanuppá yfirborðið–með tilheyrandi uppgjöri! Þrír af gestunum sjö sem gera málin upp á El Royale eru þau Laramie, Daniel og Darlene sem Jon Hamm, Jeff Bridges og Cynthia Erivo leika. Spenna / Ráðgáta / Fléttur Punktar .................................................... 1969. Veistu svarið? Þótt það komi ekki frammeð beinumhætti í myndinni þá bendir margt til að hún gerist á svipuðum tíma og Bandaríkin sendu Apollo 11 til tunglsins, kvikmyndin Midnight Cowboy var frumsýnd og bókin Guðfaðirinn eftir Mario Puzo kom út. Hvaða ár var það? Chris Hemsworth leikur Billy Lee sem eins og aðrir gestir á El Royale-hótelinu er ekki allur þar sem hann er séður. Bad Times at the El Royale Dakota Johnson leikur Emily Summerspring í Bad Times at the El Royale . VOD HHHHH - FilmThreat HHHH - Playlist HHHH - IGN HHHH - IndieWire HHHH - Empire HHHH - Total Film HHHH - Wrap HHH 1/2 - L.A. Times HHH 1/2 - E.W.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=