Myndir mánaðarins, febrúar 2019 - Leigan
26 Myndir mánaðarins The Hate U Give – Can You Ever Forgive Me? 21. febrúar 133 mín A.hl .: Amandla Stenberg, Regina Hall og Anthony Mackie Leikstj.: George Tillman Jr. Útgef.: Síminn og Vodafone VOD Drama Starr Carter er ungmenntaskólastúlka semkvöld eitt verður vitni að því að æskuvinur hennar og skólafélagi er skotinn til bana af lögreglumanni án þess að hafa nokkuð til saka unnið. Um leið gjörbreytist líf hennar að eilífu. Atburðurinn hefur að sjálfsögðu mikil áhrif á Starr, ekki bara áfallið sem hún verður fyrir að horfa upp á æskuvin sinn skotinn til bana heldur einnig eftirmálin því hún er auðvitað aðalvitni þeirra sem vilja að lögreglumaðurinn sé dreginn til ítrustu ábyrgðar og dæmdur fyrir morð. Á móti kemur gríðarlegur þrýstingur frá þeim sem verja lögreglumanninn og vilja meina að hann hafi í raun haft góða ástæðu til að skjóta. Undir þessu álagi kemur í ljós úr hverju Starr Carter er gerð ... Raddir hinna föllnu Amandla Stenberg leikur Starr Carter og í hlutverki móður hennar er Regina Hall. l The Hate U Give hefur unnið til fjölda viðurkenninga og verðlauna hjá hinum ýmsu fagaðilum og þykir mörgum súrt í broti að hún skyldi ekki fá tilnefningar til Óskarsverð- launa, ekki síst fyrir hönd aðalleik- konunnar Amöndlu Stenberg sem sýnir frábæran leik í aðalhlutverkinu og fyrir vandað handrit Audrey Wells. l Myndin er byggð á samnefndri bók eftir Angie Thomas sem kom út í febrúar 2017 og sat í efsta sæti á lista New York Times yfir söluhæstu ungl- ingabækurnar í 50 vikur samfleytt. Punktar .................................................................. HHHHH - Wash. Post HHHH 1/2 - Variety HHHH 1/2 - C. Sun-Times HHHH - IndieWire HHHH - Empire HHHH - Screen International HHHH - Rolling Stone HHHH - Time HHHH - Los Angeles Times 21. febrúar 106 mín A.hl .: Melissa McCarthy, Richard E. Grant og DollyWells Leikstjórn: Marielle Heller Útgef.: Síminn og Vodafone VOD Sannsögulegt Rithöfundurinn Lee Israel mámuna sinn fífil fegurri enda vill enginn lengur gefa út bækur hennar. Langt á eftir með leiguna og enga peninga á leiðinni dettur hún fyrir tilviljun niður á snjalla lausn – semþví miður er líka glæpur. CanYou Ever ForgiveMe er byggð á samnefndri sjálfsævisögu Lee Israel semkomút 2008 en í henni fór húnm.a. yfir mál sem skók bandaríska bókmenntaheiminn árið 1992. Eftir að hafa gefið út nokkrar ævisögur sem gengu ágætlega féll Lee í hálf- gerða ónáð þegar hún gaf út ævisögu Estée Lauder í óþökk hennar. Slypp og snauð datt hún niður á þá lausn að falsa sendibréf frægs fólks og selja þau til safn- ara. Þar með setti hún í gang atburðarás sem hefði varla verið hægt að skálda ... Neyðin kennir nöktum ... Richard E. Grant og Melissa McCarthy fara á miklum kostum í þessari frábæru mynd. l Þau Melissa McCarthy og Richard E. Grant, sem þykja hreint og beint stór- kostleg í hlutverkum sínum sem þau Lee Israel og Jack Hock, voru bæði tilnefnd til Golden Globe-verðlaun- anna fyrir leikinn og eru einnig bæði tilnefnd til BAFTA- og Óskarsverð- launanna sem verða afhent í febrúar. Sama gildir um handritshöfundana Nicole Holofcener og JeffWhitty sem eru einnig tilnefnd til bæði BAFTA- og Óskarsverðlaunanna fyrir það. l Þetta er frábær mynd sem allir kvik- myndaunnendur ættu hiklaust að sjá. Punktar .................................................................. HHHHH - N.Y. Times HHHHH - Observer HHHHH - Chic. Sun-Times HHHH 1/2 - IndieWire HHHH 1/2 - L.A. Times HHHH 1/2 - Film Journal HHHH - Rolling Stone HHHH - Guardian HHHH - Hollywood Reporter
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=