Myndir mánaðarins, febrúar 2019 - Leigan

28 Myndir mánaðarins I Still See You – Time Freak 22. febrúar 98 mín A.hl .: Bella Thorne, Richard Harmon, Dermot Mulroney og Shaun Benson Leikstj.: Scott Speer Útgef.: Myndform VOD Tryllir Dag einn springur rannsóknarstofa í Chicago í loft upp með þeim afleið- ingum að milljónir íbúa hennar láta lífið. Það furðulega er að hinir látnu ganga allir aftur í óþekktu efnislegu formi sem þeir sem eftir lifa geta séð en ekki snert því um leið og það er reynt leysast „draugarnir“ upp í reyk. Þeir sem hafa gaman af dularfullum, hrollvekjuskotnum vísindaskáldsögum og ráðgátumættu að kíkja á þessa mynd sembyggð er á bókinni BreakMy Heart 1000 Times eftir Daniel Waters. Sagan gerist tíu árum eftir sprenginguna í rannsóknar- stöðinni sem skapaði hinn furðulega draugagang og við kynnumst menntaskóla- nemanum Ronnie sem eins og aðrir er fyrir löngu orðin vön draugunum og kippir sér t.d. ekki lengur upp við að sjá dána æskuvini eða draug föður síns við morgun- verðarborðið. Dag einn fær hún þó ástæðu til að óttast um sinn hag þegar einn draugurinn virðist gera tilraun til að ná sambandi við hana. Vandamálið er að enginn trúir henni þar sem það hefur aldrei gerst að einhver af draugunum hafi reynt að ná sambandi við þá sem lifa. En Ronnie er alveg viss um hvað hún sá ... Rödd að handan Bella Thorne leikur Ronnie sem lendir í óvæntu og hættulegu sambandi við draug. 22. febrúar 104 mín A.hl .: Asa Butterfield, Sophie Turner, Skyler Gisondo ogWill Peltz Leikstjórn: Andrew Bowler Útgef.: Myndform VOD Rómantísk kómedía Menntaskólaneminn Stillman verður fyrir miklum vonbrigðumþegar kær- asta hans, Debbie, segir honum upp. Staðráðinn í að vinna hana til baka ákveður Stillman að smíða sér tímavél til að fara til baka, komast að því hvað fór úrskeiðis í sambandinu og laga það. Það er bara eitt vandamál. Time Freak er létt og fjörug rómantísk gamanmynd sem byggir á því sígilda þema tímaferðalagsmynda að um leið og þú ferð til baka og breytir einu þá breytist allt. Á þessu áttar Stillman sig ekki til að byrja með og þegar við bætist að Evan félagi hans kemur með í tímaferðalagið vandast málin enn frekar því Evan á það til, ekki síður en Stillman, að gera einhverja vitleysu semnauðsynlegt er að leiðrétta. Þann- ig tekst þeim félögum að skapa sífellt flóknari vandamál og erfiðari aðstæður sem versna til muna þegar tímavélin brotnar í klaufalegu slysi. Hvað gera bændur þá? Reyndu aftur Asa Butterfield leikur hinn ástfangna og úrræðagóða Stillman sem eftir að hafa verið sagt upp af kærustunni ákveður að smíða sér tímavél og laga það sem fór úrskeiðs.

RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=