Myndir mánaðarins, mars 2019 - Bíó
10 Myndir mánaðarins Bíófréttir – Væntanlegt Magnaður árangur Undanfarin fimm ár hafa verið mikið ævintýri í lífi rithöfundarins Önnu Todd sem hóf á árinu 2013 að skrifa sögur inni á sögusamfélagsmiðlinum Wattpad, sögur sem voru innblásnar af hrifningu hennar á tónlist hljóm- sveitarinnar One Direction og ekki síður á einum að meðlimum hennar, Harry Styles. Það er skemmst frá því að segja að sögurnar, sem bera sam- heitið After , slógu í gegnogurðu innan árs að prentuðum metsölubókum sem fengu frábæra dóma og hafa svo á þeim stutta tíma sem liðinn er verið þýddar á meira en þrjátíu tungumál og víða farið í efsta sæti bóksölulista, t.d. í Frakklandi, á Ítalíu, Spáni og í Þýskalandi. Er nú talið að þær hafi selst í meira en 15 milljónum eintaka. Að auki er nú búið að kvikmynda þessar sögur, eða hluta þeirra, og er sú mynd væntanleg í bíó í apríl. Við kynnum hana því betur í næsta blaði en bendum áhugasömum á að skoða myndina á netinu þar sem fyrstu stikluna er að finna. Óskar í vændum? Lífið fer í hringi ásamt árstíðunum og nú þegar Óskarsverðlauna- hátíðin 2019 er að baki eru menn þegar farnir að spá í hvaða myndir það verði sem keppa munu á næstu verðlaunatíð um helstu verðlaun ársins. Ein þeirra mynda sem er strax að fá mikla athygli er myndin Rocketman eftir Dexter Fletcher en hún segir frá ævi Reginalds Kenneth Dwight sem vakti athygli fyrir tónlistargáfu sína á unga aldri og varð síðan heimsfrægur sem Elton John. Það er Taron Egerton sem fer með hlutverk Eltons og vangaveltur um að þarna sé á ferðinni ein af verðlaunamyndum ársins fengu byr undir báða vængi á dögunum þegar fyrsta langa stiklan úr myndinni var frumsýnd enda þykir hún alveg frábær. Það dregur ekki úr að leikstjóri myndarinnar er Dexter Fletcher sem eins og margir vita tók við taumunum þegar Bryan Singer gekk úr skaptinu og kláraði að leikstýra Bohemian Rhapsody án þess þó að hans framlags sé getið á kreditlistum. Sagan segir að Dexter hafi tekist snilldarlega vel upp með Rocketman og að það skemmi ekki fyrir að Taron Egerton sé algjörlega frábær í hlutverki hins mikla músíkants. Við sjáum hvað setur en myndin verður að öllum líkindum frumsýnd í byrjun júní og þá kemur þetta allt í ljós. Önnur mynd sem nefnd hefur verið að undanförnu sem líklegur verðlauna- kandídat ársins 2019 tengist líka tónlist. Þetta er myndin Yesterday eftir þá Danny Boyle og handritshöfundinn Richard Curtis, en hún segir frá tónlistarmanninum Jack Malik sem rankar við sér á spítala eftir að ekið er á hann og kemst þá að því að hann er kominn inn í einhvers konar hliðarveröld þar sem Bítlarnir hafa aldrei verið til og þá ekki lögin þeirra heldur. Jack kann hins vegar öll lögin og þótt hann reyni í fyrstu að segja fólki frá því að hann sé ekki höfundurinn þýðir það ekki neitt og áður en varir er hann orðinn heimsfrægur og er um leið kominn í hóp með vinsælustu lagahöfundum allra tíma. Það er Himesh Patel sem leikur Jack en hann er þekktastur fyrir að leika Tamwar Masood í Eastenders -sjónvarpsseríunni og Nitin í gamanþáttunum Damned . Með önnur stór hlutverk fara m.a. þær Lily James, Ana de Armas og Kate McKinnon og þeir James Corden og Ed Sheeran leika sjálfa sig. Tvær langar stiklur úr myndinni hafa verið frumsýndar og hvað sem öllum verðlaunum líður þá spáum við því hér á Myndum mánaðarins að Yesterday verði einn af stórsmellum næsta sumars, en myndina á að frumsýna í júní. Tvær teiknimyndir í apríl Góðar teiknimyndir njóta sívinsælda í kvikmyndahúsum og í apríl verða tvær slíkar glænýjar myndir frumsýndar. Sú fyrri er myndin Undragarðurinn , eða Wonder Park á ensku, og segir frá ungri stúlku sem lendir í ævintýri lífs síns þegar hún finnur sannkallaða ævintýraveröld þar sem allt sem hún getur ímyndað sér verður að veruleika. Seinni myndin heitir Týndi hlekkurinn , eða Missing Link og er eftir Chris Butler sem skrifaði m.a. Kubo and the Two Strings og ParaNorman og leikstýrði einnig þeirri síðarnefndu. Hér segir frá herra Link sem er forsögulegur maður, eiginlega mannapi, sem ákveður að ráða í þjónustu sína landkönnuðinn Lionel Frost til að hjálpa sér að finna ættingja sína sem herra Link telur að geti enn hafst við í hinu dularfulla Sjangrí La- héraði þar sem tíminn stendur kyrr. Við kíkjum betur á báðar þessar teikni- myndir í næsta blaði en þangað til geta áhugasamir skoðað frábærar stiklurnar.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=