MM Mars 2019 DVD WEB

29 Myndir mánaðarins An Evening with Beverly Luff Linn – Tappi mús 29. mars 108 mín Aðalhl.: Aubrey Plaza, Jemaine Clement, Emile Hirsch og Craig Robinson Leikstj.: Jim Hosking Útg.: Myndform VOD Gamanmynd/farsi Brothætt samband hjónanna Lulu og Shane Danger klofnar í tvennt þegar dularfull persóna úr fortíð Lulu kemur til bæjarins til að halda eina sýningu á einhverju sem enginn nema hann veit hvað er – og kannski Lulu. Grín- og glæpafarsinn An Evening with Beverly Luff Linn fjallar um vægast sagt stórfurðulegar persónur sem taka upp á stórfurðulegum hlutum af stórfurðu- legum ástæðum. Eins og það hafi ekki verið nógu slæmt þegar Shane rak Lulu úr vinnu í stað ónytjunganna tveggja sem enn vinna hjá honum þá versnar staða hennar verulega þegar Beverly Luff Linn mætir á svæðið, en hann er sennilega gamall elskhugi hennar. Hún afræður því að ráða vonlausan leigumorðingja að nafni Colin til að leigja með sér herbergi á hótelinu sem Beverly er á með það að markmiði að senda hann yfir móðuna miklu áður en eitthvað fer illa úrskeiðis ... Það verður bara ein sýning Aubrey Plaza og Jemaine Clement eru hér í hlutverkum hinna furðulegu Lulu og Colin. l Leikstjóri og handritshöfundur myndarinnar, Jim Hoskins, sendi síðast frá sér hina makalausu mynd The Greasy Strangler sem mörgum þótti fyndnasta mynd ársins 2016, en hún kom einmitt út á sjónvarpsleig- unum í febrúar 2017. Ef þú kunnir að meta húmorinn sem þar var boðið upp á þá muntu kunna að meta An Evening with Beverly Luff Linn . l Húmor eins og hér þar sem stigið er talsvert út fyrir strikin móðgar suma á meðan aðrir geta hlegið sig máttlausa að vitleysunni. Hvað með þig? Punktar .................................................................. HHHH 1/2 - Austin Chronicle HHHH - Empire HHHH - The Guardian HHH 1/2 - IndieWire HHH 1/2 - Los Angeles Times HHH 1/2 - Variety Tölvuteiknuðuþættirnir umTappamús eru8mínútur á lengdog inniheldur hver þáttur sjálfstæða sögu umævintýri hans og þeirra sem hann þekkir. Þessar skemmtilegu teiknimyndir eru byggðar á barnabókum eftir ítalska höf- undinn Andrea Dami með teikningum eftir Marco Campanella en þær hafa verið þýddar á meira en 30 tungumál á undan- förnum árum. Hver einasti dagur ber í skauti sér ný tækifæri fyrir Tappa til að kanna veröldina og undrin sem í henni leynast ásamt fjölskyldu sinni og vinahóp þar sem kætin og gleðin ræður ætíð för. Tappi mús 29. mars 56 mín Teiknimyndir um Tappa mús, fjölskyldu hans og dagleg ævintýri þeirra Útgefandi: Myndform VOD Barnaefni

RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=