MM Mars 2019 DVD WEB
6 Myndir mánaðarins Vatnsberinn 20. jan. - 18. feb. Tvíburarnir 21. maí - 21. júní Vogin 23. sept. - 23. okt. Það verður frekar lítið um að vera hjá þér næstu vikurnar fyrir utan að ein- hver býður þér út að borða. Það er að öllum líkindum gildra. Lestu þér til um aðstæður í uppsveitum Austurríkis. Vitneskja þín um veröldina eykst til muna þegar einhver upplýsir þig um að til að geta framleitt eitt kíló af harð- fiski þarf tólf kíló af ferskum fiski og að þess vegna sé harðfiskur svona dýr. Ef þér finnst lífið hvorki sanngjarnt né réttlátt er gott að hafa í huga að ef þú skerð endana af langlokubrauði getur þú borðað það endalaust. Dugar ekki á pulsur en getur prófað þetta á lakkrís. Þér berast nokkur Nígeríubréf. Sporðdrekinn 24. okt. - 21. nóv. Bogmaðurinn 22. nóv. - 21. des. Forðastu allt gjálífi á næstunni svo þú lendir ekki í því sama og Halli lenti í um árið þegar hann missti kúlið. Þú spáir í hvers vegna letrið hefur minnkað skyndilega og uppgötvar að það er vegna þess að annars kæmist allur þessi texti ekki fyrir. Steingeitin 22. des. - 19. jan. Ástæðan fyrir því að þú ert alltaf að glíma við sömu vandamálin er að þú leysir þau aldrei í eitt skipti fyrir öll. Samkvæmt stjörnunum eru góðar lík- ur á því að þú skreppir í silung í sumar. Krabbinn 22. júní - 22. júlí Þú átt það til að detta í sjálfsvorkunn og volæði og þarft að læra að rétta ráðið við því er að vera ekki með nefið ofan í annarra manna koppum. Kauptu þér eitthvað hressandi, t.d. lambalæri. Ljónið 23. júlí - 22. ágúst Fólk sem er fætt í meyjarmerkinu er sennilega vanmetnasta fólk í heimi og um leið það misskildasta. Þessu gætir þú snúið við með því að tala hreint út um löngun þína til að læra netagerð. Meyjan 23. ágúst - 22. sept. Það verður meðalmikið um að vera hjá þér á næstunni eða meðallítið, allt eftir því hvernig þú horfir á hlutina. Það væri gaman og gott fyrir alla ef þú reyndir á næstunni að komast til Hong Kong. Fiskarnir 19. feb. - 20. mars Það verður mjög mikið um að vera hjá þér á næstu vikum, svo mikið reyndar að það kemst ekki allt fyrir hér þannig að við settum spána þína upp á netinu. Lestu hana á bit.ly/stjörnuspa . Hrúturinn 21. mars - 19. apríl Það er bæði hollt og heilsusamlegt að drekka vatn og hjóla þannig að þú ættir að gera mikið af því á næstunni. Einhver býður þér í fermingarveislu en maturinn verður bara svona la la. Nautið 20. apríl - 20. maí Það verður uppi fótur og fit þegar þú skreppur að gefa öndunum á sunnu- daginn, sennilega í hádeginu. Taktu allt í gegn heima hjá þér og mundu eftir að hreinsa úr eyrunum í leiðinni. Hjónin Jamie Lee Curtis og Christopher Guest fagna 35 ára brúðkaupsafmæli sínu á þessu ári en þau gengu í það heilaga í desember 1984. Sex mánuðum áður hafði Jamie verið að fletta tímaritinu Rolling Stone þegar hún sá ljósmynd af Christopher í tengslum við grein um glænýja mynd Robs Reiner, This is Spinal Tap , sem frumsýnd var í maí sama ár. Jamie sagði strax við vinkonu sína, framleiðandann Debru Hill: „Þessi maður, Christopher Guest, ég mun giftast honum“. Daginn eftir hafði Jamie uppi á umboðsmanni Christophers og gaf honum upp símanúmerið sitt með beiðni um að Christopher hringdi í sig. Hann hringdi ekki. Tveir mánuðir liðu og Jamie var stödd ásamt Debru á veitingastað í Hollywood þegar Christopher gekk inn ásamt kunningja sínum og settist við þriðja borð frá þeim Debru. Augu þeirra mættust og Christopher veifaði. Jamie vissi þá fyrir víst að hann hafði fengið skilaboðin þótt hann hefði svo ekki hringt ... og veifaði til baka. Jamie og Christopher töluðu ekki saman á veitingastaðnum en daginn eftir hringdi hann í hana og daginn eftir það fóru þau saman út að borða í fyrsta sinn. Tveimur mánuðum síðar bað Christopher hennar og tveimur mánuðum eftir það gengu þau í hjónaband. Jamie vissi því heldur betur hvað hún var að segja þegar hún sá fyrst myndina af Christopher með greininni í Rolling Stone. Þess má geta að þau hjón eiga tvö börn, Annie og Thomas, sem þau ættleiddu árin 1986 og 1996. Fyrir 25 árum höfðu fáir utan Ástralíu heyrt leikkonunnar Toni Collette getið enda hafði hún þá bara leikið lítið aukahlutverk í einni ástralskri mynd ( Spotswood ) og enn smærra hlutverk í einumþætti ástralskrar sápuóperu sem hét A Country Practice . Þetta átti eftir að breytast snarlega seinna á árinu 1994 þegar gamandramað Muriel’s Wedding eftir P.J. Hogan var frum- sýnt og sló hressilega í gegn beggja vegna Atlantshafsins, þ. á m. hér á Íslandi þar sem myndin fékk metaðsókn og er enn í miklu uppáhaldi hjá þeim sem sáu hana þá í bíó. Síðan þá hefur Toni leikið í mörgum góðum myndum eins og allir vita og verið hlaðin verðlaunum enda ein af þessum leikkonum sem klikka aldrei, sama í hvaða hlutverki hún er. Rami Malek, sem nú er orðinn stórstjarna eftir frammistöðu sína sem Freddie Mercury í Bohemian Rhapsody , er fæddur í Bandaríkjunum en foreldrar hans voru innflytjendur frá Egyptalandi. Rami er eineggja tvíburi en bróðir hans, sem heitir Sami Malek, fæddist fjórum mínútum á eftir honum og því telst Rami „stóri bróðirinn“ í fjölskyldunni. Núna í mars verða liðin 20 ár síðan meistaraverkið The Matrix eftir Wachowski-bræður (sem nú eru orðnar systur) var frumsýnt, en The Matrix er að margra mati ein besta bíómynd allra tíma og sópaði hún m.a. til sín nánast öllum tækni- og hljóðbrelluverðlaunum sem hægt var að fá á þeim tíma. Jamie og Christopher árið 1984. Þessi mynd var svo tekin í fyrra. Greinin og myndin í Rolling Stone. Í Muriel’s Wedding árið 1994. Toni Collette. Rami og Sami Malek.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=