Myndir mánaðarins, apríl 2019 - Bíó
26 Myndir mánaðarins Five Feet Apart Eitt skref í einu Aðalhlutverk: Haley Lu Richardson, Cole Sprouse, Claire Forlani, Moises Arias, Parminder Nagra og Kimberly Hebert Gregory Leikstjórn: Justin Baldoni Bíó: Laugarásbíó, Smárabíó, Sambíóið Keflavík og Borgarbíó Akureyri 116 mín Frumsýnd 17. apríl l Til að tryggja að í sögunni væri rétt farið með allt sem viðkemur slímseigjusjúkdómnum unnu aðstandendur hennar og allir leikar- arnir náið með bandarísku samtökunum Claire’s Place sem styðja við bak sjúklinga sem þjást af þessum arfgenga sjúkdómi. l Cole Sprouse hóf leiklistarferil sinn aðeins ársgamall þegar hann og eineggja tvíburabróðir hans, Dylan, skiptu með sér hlutverki Patricks Kelly í sjónvarpsþáttunum Grace Under Fire næstu fimm ár, þ.e. frá 1993 til 1998. Þeir léku síðar Julian, son Adams Sandlers í Big Daddy , og vafalaust muna svo Friends -aðdáendur eftir Cole í hlutverki Bens Gellar, sonar Ross Gellar sem David Schwimmer lék. Þau Will og Stella eru ungt fólk sem þjáist af hinum arfgenga sjúkdómi Cystic Fibrosis sem á íslensku hefur verið kallaður slímseigjusjúkdómur og er enn sem komið er ólæknandi. Þau kynnast á sjúkrahúsi þar sem þau sækja hin ýmsu meðferðar- úrræði og á milli þeirra kvikna rómantískar tilfinningar. Five Feet Apart er raunsönn og hrífandi, rómantísk ástarsaga þar sem tvær af framtíðarstjörnum Bandaríkjanna, þau Cole Sprouse og Haley Lu Richardson, fara á kostum í vandasömum hlutverkum. Um leið og þau Will og Stella hittast og verða ástfangin komast þau ekki hjá því að horfa til vandamálanna við sambandið sem eru af margvíslegum toga, þ. á m. það að þeim er bannað að koma nær hvort öðru en sem nemur fimm fetum. Það setur að sjálfsögðu stórt strik í reikninginn auk þess sem ýmislegt annað við þennan sjúkdóm, sem á árum áður dró fólk yfirleitt til dauða, skerðir allar framtíðarhorfur þeirra. En sem fyrr lætur ástin ekki að sér hæða ... Five Feet Apart Rómantík / Drama Punktar .................................................... Split. Veistu svarið? Haley Lu Richardson skapaði sér upphaflega nafn sem dansari og danshöfundur áður en hún hellti sér út í leiklistina fyrir nokkrum árum. Hún lék m.a. eina af stúlkunum þremur sem KevinWendell Crumb tók í gíslingu í einni af myndum ársins 2016. Hvaða mynd? Með aðalhlutverkin í myndinni fara þau Cole Sprouse og Haley Lu Richardson og hafa þau hlotið mikið lof fyrir frammistöðu sína. Myndin dregur heiti sitt af því að vegna sjúkdómsins er þeim Stellu og Will skipað að halda sig í a.m.k. fimm feta fjarlægð frá hvort öðru.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=