Myndir mánaðarins, maí 2019 - Leigan

18 Myndir mánaðarins Finding Your Feet – Billi Blikk 10. maí 159 mín Aðalhl.: Imelda Staunton, Celia Imrie, Timothy Spall og Jo- anna Lumley Leikstj.: Richard Loncraine Útg.: Myndform VOD Gamandrama Þegar Sandra Abbott kemst að því að eiginmaður hennar til 35 ára hefur átt í ástarsambandi við bestu vinkonu hennar pakkar hún niður í hvelli og flytur til systur sinnar, Bif, sem býr í London og lumar á ráðum til að hressa systur sína við. Ekki líður á löngu uns Sandra tekur að átta sig á að það er engin ástæða til að leggja árar í bát heldur nota tækifærið til að lifa lífinu til fulls! Þeir sem kunna að meta rómantískar kómedíur, svo ekki sé talað um breskar„feel good“-myndir eins og þær gerast bestar, eiga eftir að hafa mjög gaman af þessari hressu og fyndnu mynd þar sem nokkrir af bestu og virtustu leikurum Breta fara á kostum. Þótt Sandra sé í byrjun bæði döpur og öskureið yfir framkomu eigin- mannsins byrjar hún að taka gleði sína aftur þegar Bif kynnir hana fyrir danshóp sem hún er hluti af – og á eftir að reynast það besta sem fyrir Söndru gat komið! Endirinn er bara byrjunin Bresku gæðaleikararnir Imelda Staunton og Timothy Spall leika þau Söndru og Charlie sem verða bestu vinir og dansfélagar. l Þótt Imelda Staunton og Timothy Spall hafi leikið í tveimur sömu Harry Potter -myndunum hittust persónur þeirra ekki í þeim og því telst þetta vera í fyrsta sinn sem þau leika hvort á móti öðru í bíómynd. Þau hafa hins vegar þekkst í rúmlega fimmtíu ár eftir að hafa hist þegar þau sóttu leiklistar- nám í Royal Academy of Dramatic Art á sjöunda áratug síðustu aldar. l Þess utan hafa allir aðalleikarar myndarinnar margoft unnið saman áður síðastliðna áratugi, bæði í bíó- og sjónvarpsmyndum og á sviði. Punktar .................................................................. HHH 1/2 - R.Ebert.com HHH 1/2 - Variety HHH 1/2 - Entertainment Weekly HHH - ReelViews HHH - N.Y. Times HHH - L.A. Times HHH -Wash. Post Teiknimyndirnar um kóalabjörninn Billa Blikk og félaga eru byggðar á bókum eftir nýsjá- lenska rithöfundinn Dorothy Wall, en þær komu út á árunum 1933 til 1937 og hafa allar götur síðan notið vinsælda víða um heim. Fyrstu teiknimyndirnar um Billa Blikk voru gerðar upp úr 1990 og leiddu til tölvuteiknaðrar bíó- myndar sem var frumsýnd 2017. Í kjölfarið var gerð ný 16-mynda teiknimyndaröð um Billa og vini og ævintýri þeirra og kom fyrri hluti hennar, þ.e. átta þættir, út á sjónvarpsleigunum 15. mars. Hér er svo seinni hlutinn, sem kemur út 10. maí. Barnaefni Ævintýri í Ástralíu 10. maí Teiknimyndir með íslensku tali um Billa Blikk og hina eldhressu félaga hans Útgefandi: Myndform 96 mín VOD

RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=