Myndir mánaðarins, maí 2019 - Leigan

24 Myndir mánaðarins 17. maí 152 mín Aðalhl.: Tilda Swinton, Dakota Johnson, Chloë Grace Moretz og Mia Goth Leikstjórn: Luca Guadagnino Útg.: Myndform VOD Tryllir Susie Bannion er bandarískur dansari sem kemur til Berlínar til að sækja umdanshlutverk hjá hinu virta dansstúdíói HelenuMarkos. Þar heillar hún einn helsta danshöfund heims, Madame Blanc, upp úr skónum og áður en varir er hún orðin aðaldansari stúdíósins. En hér býrmeira að baki en sýnist! Suspiria er eftir ítalska leikstjórann Luca Guadagnino, en hann gerði m.a. verð- launamyndina Call Me by Your Name sem var tilnefnd til fernra Óskarsverðlauna í fyrra. Hér býður hann okkur inn í magnaða veröld sem er langt frá því að vera sú sem hún sýnist í fyrstu og segir okkur sögu sem fer létt með að láta hárin rísa ... Gefðu allt í dansinn Suspiria er listilega vel gerð mynd í alla staði og þess ber að geta að á meðal leikara í henni er íslenski dansarinn Halla Þórðardóttir sem leikur hlutverk Masciu. l Suspiria hefur eins og sést á stjörnu- gjöfinni hér fyrir ofan hlotið afar góða dóma og þeir eru ófáir sem telja hana á meðal bestu mynda ársins 2018. Myndin hefur enn fremur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga, ekki síst fyrir magnaða tónlist (Thom Yorke), klippingu, förðun, kvikmyndatöku, og sviðsetningu. l Myndiner eins ogmargir vita endurgerð samnefndrar myndar ítalska kvikmynda- gerðarmannsins Darios Argento frá árinu 1977 sem einnig hlaut frábæra dóma og margir kalla tímamótaverk, ekki síst hvað varðar notkun lita og litasamsetninga. Punktar .................................................................. HHHHH - N.Y. Magazine HHHHH - Time Out HHHHH - Telegraph HHHH 1/2 - The Verge HHHH 1/2 - The Playlist HHHH 1/2 - L.A. Times HHHH 1/2 - N.Y. Post HHHH 1/2 - Vanity Fair HHHH - Screen Intern. HHHH - CineVue HHH 1/2 - Variety HHH 1/2 - Hollywood Reporter Mía og ég eru tölvuteiknaðir 23 mínútna þættir um hina tólf ára gömlu Míu sem í gegnum gjöf frá föður sínum, sem var uppfinningamaður, getur ferðast inn í álfa- og ævintýralandið Sentópíu þar sem hún breytist sjálf í álfastelpu. Í Sentópíu búa bæði álfar og margs konar furðudýr svo sem einhyrningar sem Mía tekur miklu ástfóstri við enda skilur hún mál þeirra og þeir hennar. Ásamt þeim og öðrum vinum sínum lendir Mía síðan í margs konar skemmtilegum ævintýrum. Mía og ég Komdu með í ævintýralandið Sentópíu 17. maí 69 mín Teiknimyndir um hina 12 ára Míu sem ferðast inn í ævintýralandið Sentópíu Útgefandi: Myndform VOD Barnaefni Suspiria – Mía og ég

RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=