Myndir mánaðarins, maí 2019 - Leigan

26 Myndir mánaðarins Fighting with My Family Þú verður að hafa neistann! Aðalhlutverk: Florence Pugh, Jack Lowden, Dwayne Johnson, Nick Frost, Vince Vaughn, Lena Headey, Stephen Merchant, Kim Matula og Hannah Rae Leikstjórn: Stephen Merchant Útgefandi: Myndform 108 mín 23. maí l Myndin hefur eins og sést fengið fína dóma gagnrýnenda og er með 7,6 í einkunn á Imdb.com og 93%„fresh“ á Rotten Tomatoes. Sönn saga glímudrottningarinnar Sarayu-Jade Bevis semund- ir sviðsnafninu Britani Knight (síðar Paige) hóf atvinnuferil í glímu þrettán ára gömul og vann sig upp í bandarísku WWE- atvinnumannaglímuna þar semhún varð aðeins 21 árs að aldri yngsta konan til að vinna svokallaða Divas-glímukeppni. Þessi merka saga sem hér er sögð á gamansaman hátt sækir efnið að stórum hluta í samnefnda heimildarmynd frá árinu 2012 um bresku Bevis-fjölskylduna, en allir fimm fjölskyldumeðlimirnir voru atvinnumenn í fjölbragðaglímu. Myndin er framleidd af Dwayne Johnson sem leikur einnig sjálfan sig í henni en hann þekkir fjöl- skylduna vel og hvatti þau til dáða á sínum tíma enda sjálfur einn þekktasti fjölbragðaglímumeistari sögunnar eins og mjög margir vita. Til liðs við sig fékk hann grínistann Stephen Merchant sem skrifaði handritið og leikstýrði myndinni, en Stephen er einna þekktastur sem samstarfsmaður Rickys Gervais og bæði skrifaði, lék í og leikstýrði Office - og Extras -þáttunum kostulegu. Við förum ekki nánar út í söguþráð Fighting with My Family hér en lofum því að um er að ræða frábæra mynd sem veldur engum vonbrigðum. Sarayu-Jade Bevis, eða Paige eins og hún er nefnd í myndinni, er leikin af hinni 23 ára gömlu Florence Pugh sem vakti m.a. mikla athygli fyrir frábæran leik í myndinni Lady Macbeth árið 2016 og sem Charlie í bresku sjónvarpsþáttaröðinni The Little Drummer Girl . Fighting with My Family Sannsögulegt / Gamanmynd Punktar .................................................... Stephen Merchant leikstjóri og handritshöfundur Fighting with My Fam- ily og Dwayne Johnson sem framleiðir. Þeir leika líka báðir í myndinni . Natasha Romanoff. Veistu svarið? Florence Pugh hefur á skömmum tíma orðið ein eftirsóttasta leikkona Breta, en hún mun m.a. fara með eitt af aðalhlutverkunum í Marvel-myndinni væntanlegu Black Widow á móti Scarlett Johansson. Hvert er hið raunverulega nafn svörtu ekkjunnar? VOD DVD HHHH 1/2 - C. Sun-Times HHHH - Observer HHHH - Screen HHHH - N.Y. Times HHHH - Time Out HHHH - Telegraph HHHH - Film Threat HHH 1/2 - Variety HHH 1/2 - R. Stone HHH 1/2 - L.A. Times HHH 1/2 - E.W. HHH 1/2 - N.Y. Post

RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=