Myndir mánaðarins, maí 2019 - Leigan
27 Myndir mánaðarins 24. maí 101 mín Aðalhlutv.: Patrick Wilson, Amy Smart, Lynn Collins og Rashida Jones Leikstj.: Tracey Hecht Útg.: Myndform VOD Drama/rómantík Við fyrstu sýn virðist Will hinn mesti lukkunnar pamfíll. Hann er vel kvænt- ur hinni röggsömu Catherine, á ungan og efnilegan son, rekur sitt eigið verkfræðifyrirtæki og stendur til boða að sameina það öðru fyrirtæki sem myndi tryggja alla fjárhagslega framtíð hans. En það er samt eitthvað að. Það má segja að Matters of the Heart tilheyri kvikmyndaflokki sem á ensku er oft kallaður „Slice of life“. Í þann flokk fara raunsannar sögur af venjulegu fólki í hvers- dagslegum aðstæðum eins og Will sem er arkitekt að mennt og hefur komið ár sinni vel fyrir borð–eða svovirðist vera. Þegar honumbýðst að sameina sitt fyrirtæki öðru semmyndi tryggja fjölskyldu hans örugga framtíð, eiginkonu hans til mikillar ánægju, renna þó á hann tvær grímur. Þegar hann síðan hittir hina brosmildu Kate fer hann að gera sér ljóst hver gallinn við líf hans er og hvernig hann lagar hann ... Gallinn í sögunni Það er Patrick Wilson sem leikur arkitektinn Will sem áttar sig á því þegar hann hittir hina brosmildu og lífsglöðu Kate (Lynn Collins) hvað vantar inn í líf hans. 24. maí 121 mín Aðalhlutverk: Gaspard Ulliel, Adele Haenel, Olivier Gourmet og Laurent Lafitte Leikstjórn: Pierre Schoeller Útg.: Myndform VOD Sannsögulegt OneNation, One King ( Un peuple et son roi ) er sögulegt skáldverk semgerist í Frönsku byltingunni á árunum 1789–1793. Örlög almúgakarla og kvenna og sögufrægra persóna eins og t.d. Robespierres, Marats, Desmoulins og Dantons fléttast saman í aðdraganda byltingarinnar en þungamiðja sög- unnar eru afdrif konungsins, Lúðvíks 16., og stofnun franska lýðveldisins. Þeir sem hafa gaman af sögulegum kvikmyndastórvirkjum ættu að kíkja á þessa mynd þar semmargir af þekktustu leikurum Frakka eru samankomnir undir stjórn leikstjórans og handritshöfundar myndarinnar Pierres Schoeller. Hann fer þá leið hér að sýna aðdraganda og fyrstu ár Frönsku byltingarinnar frá mjög víðu sjónar- horni þar semáhorfendur kynnast ekki bara fólki ogþátttakendumaf öllumstigum og stéttum þjóðfélagsins heldur og kjörum þeirra og daglegu lífi mitt í allri ringul- reiðinni sem fylgdi þessari sögulegu byltingu – sem gjörbreytti síðan allri Evrópu. Allt fyrir frelsið Konungurinn þegar byltingin hófst, Lúðvík 16., er leikinn af Laurent Lafitte. l Myndin, semvar opnunarmynd Frönsku kvikmyndahátíðarinnar í febrúar þar sem hún var nefnd Lýðurinn og konungur hans , naut mikilla vinsælda í kvikmynda- húsum í Frakklandi og var tilnefnd til tvennra César-verðlauna, fyrir búninga- hönnun og sviðsetningu, en hún var að miklu leyti tekin upp á þeim stöðum sem hún gerist á, bæði í París og úti á landi. l Þetta er þriðjamynd franska leikstjórans og handritshöfundarins Pierres Schoeller sem gerði einnig myndirnar Versailles árið 2008 og hina margverðlaunuðu The Minister ( L’exercice de l’État ) árið 2011. Punktar .................................................................. One Nation, One King – Matters of the Heart
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=