Myndir mánaðarins, maí 2019 - Leigan
32 Myndir mánaðarins 96 mín 30. maí Í tilefni af því að fjórða Men inBlack -myndin verður frumsýnd í bíóhúsum14. júní, eins og lesamá um hér hinummegin í blaðinu, verða fyrri myndirnar þrjár endurútgefnar á sjónvarpsleigunum 30. maí, bæði til upprifjunar fyrir alla gamla aðdáendur þessarar skemmtilegu kvikmyndaseríu svo og þær kynslóðir sem vaxið hafa úr grasi á þeim 22 árum síðan fyrsta myndin var frumsýnd. Men in Black VOD Fyrsta Men in Black -myndin var frumsýnd í júlí árið 1997 og sló hressilega í gegn enda bæði frumleg og fyndin. Þarna kynntust áhorfendur fyrst hinni leynilegu MIB-sveit sem hafði það verkefni með höndum að fylgjast með öllum þeim aragrúa geimvera sem flutt höfðu til Jarðar og bjuggu nú að meðal grunlausra manna. Við og við átti ein og ein af þessum geimverum það til að vera með uppsteyt og þá kom til kasta mannanna í svörtu að tukta þær til og kippa málunum í liðinn – á sinn hátt. 88 mín VOD 106 mín VOD Eftir 1997-myndina er óhætt að segja að kvikmyndaáhugafólk hafi beðið spennt eftir næstu mynd sem var svo loksins frumsýnd fimm árum síðar, eða í júlí 2002. Þar þurftu þeir J og K (Will Smith og Tommy Lee Jones) á ný að taka á honum stóra sínum þegar hin öfluga Serleena (Lara Flynn Boyle) kom til Jarðar ásamt ófrýnilegu fylgdarliði sínu og hugðist fara sínu fram. Til að byrja með vafði hún J um fingur sér en auðvitað kom hann til sjálfs sín að lokum og sendi hana aftur til síns heima, dyggilega studdur af K. Það liðu síðan tæplega sjö ár þar til þriðja Men in Black -myndin kom í bíó en hún var frumsýnd í maí 2012 og sló báðum fyrri myndunum við í vinsældum. Í þetta sinn var aðalóvinurinn hinn illa innrætti Boris the Animal semhafði tekist að snúa á MIB-sveitina með því að fara aftur í tímann ogmyrða K svo hann setti honum ekki stólinn fyrir dyrnar í framtíðinni. Eina ráðið við þessu var að senda J enn aftar í tímann og bjarga lífi K áður en Boris léti til skarar skríða. Það tókst auðvitað, en var engan veginn vandræðalaust. 30. maí 30. maí
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=