Myndir mánaðarins, ágúst 2019- Bíó
14 Myndir mánaðarins Héraðið Ef enginn segir neitt – þá breytist ekkert Aðalhlutverk: Arndís Hrönn Egilsdóttir, Sigurður Sigurjónsson, Sveinn Ólafur Gunnarsson, Hannes Óli Ágústsson, Hinrik Ólafsson og Edda Björg Eyjólfsdóttir Leikstjórn: Grímur Hákonarson Bíó: Smárabíó, Háskólabíó, Laugarásbíó og Borgarbíó Akureyri 90 mín Frumsýnd 14. ágúst l Aðalframleiðandi myndarinnar f.h. Netop Films var Grímar Jóns- son og um kvikmyndatökuna sá Mart Taniel. Klipping var í höndum Kristjáns Loðmfjörð, Valgeir Sigurðsson samdi tónlistina og um leikmyndahönnun, búningahönnun og förðun/hár sáu Bjarni M. Sigurbjörnsson, Margrét Einarsdóttir og Kristín Júlla Kristjánsdóttir. Héraðið gerist í litlu samfélagi og segir sögu Ingu, miðaldra kúabónda, semgerir uppreisn gegn kaupfélaginu á staðnum. Hún reynir að fá aðra bændur í lið með sér en það gengur erfiðlega þar sem kaupfélagið hefur sterk ítök í sveitinni. Héraðið er nýjasta mynd leikstjórans og handritshöfundarins Gríms Hákonarsonar enhann sendi síðast frá sér hina stórgóðumynd Hrútar sem hlaut ellefu Edduverðlaun, þ. á m. fyrir leikstjórn, handrit, besta leik í aðal- og aukahlutverki karla og sembestamynd ársins 2015, og Un Certain Regard-verðlaunin í Cannes, sem eru sennilega virtustu ogmikilvægustu erlendu kvikmyndaverðlaun sem íslensk kvikmynd hefur hlotið. Það er íslenska fyrirtækið Netop Films sem framleiðir Héraðið í samvinnu við danskt (Profile Pictures), franskt (Haut et Court) og þýskt (One Two Films) fyrirtæki, en síðasta mynd Netop Films var hin vinsæla mynd Hafsteins Gunnars Sigurðssonar, Undir trénu , sem 50 þúsund manns sáu í bíó og hlaut fjölda verðlauna, þ. á m. tólf Edduverðlaun, og varð framlag Íslands til Óskarsverðlauna. Við viljum að sjálfsögðu hvetja allt kvikmyndaáhugafólk til að sjá Héraðið á stóru tjaldi í bíó, en hún verður frumsýnd 14. ágúst. ÞaðerArndísHrönnEgilsdóttirsemfermeðaðalhlutverkmyndarinnar, en hún hefur leikið bæði í sjónvarpi, kvikmyndum, útvarpi og á sviði. Arndís hefur einnig fengist m.a. við dagskrárgerð fyrir Rás 1 og starfað sem leiðsögumaður fyrir franska ferðamenn á sumrin. Þess má geta til gamans að Arndís er systir tónlistarmannsins Högna sem starfar m.a. með hljómsveitinni Hjaltalín og semur kvikmyndatónlist. Héraðið Drama Punktar .................................................... Theodór Júlíusson. Veistu svarið? Sigurður Sigurjónsson, sem leikur stórt hlutverk í Héraðinu , lék bóndann Gumma í síðustu mynd leik- stjórans Gríms Hákonarsonar, Hrútum , en Gummi hafði eins og menn muna ekki talað við bróður sinn og nágranna, Kidda, í fjörutíu ár. En hver lék Kidda? Héraðið var tekin upp 2018 á Hvammstanga, Blönduósi og á rjómabúinu Erpsstöðum í Dölum þar sem þessi mynd er tekin. Sigurður Sigurjónsson leikur kaupfélagsstjórann Eyjólf í Héraðinu .
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=