Myndir mánaðarins, september 2019 - Leigan

28 Myndir mánaðarins Tegund: Körfuboltaleikur Kemur út á: PS4, Xbox One og Switch PEGI aldurstakmark: 3+ Útgáfudagur: 6. september Framleiðandi: 2K Sports Útgefandi: Sena NBA 2K leikirnir hafa þróast yfir í að vera svo miklu meira en bara körfuboltaleikir. Með NBA 2K20 heldur 2K áfram að skilgreina upp á nýtt hvað er mögulegt í gerð íþróttaleikja, en leikurinn inniheldur allt það besta þegar kemur að grafík, spilun, spilunarmöguleikum, stýringum leikmanna og fjölda möguleika til að breyta og aðlaga allt að eigin smekk. Að þessu sinni mun leikurinn innihalda glænýjan söguþráð þar sem þekktir Hollywood-leikarar koma við sögu, auk þess sem „Neighbourhood“ verður á sínum stað, en það er opinn heimur þar sem spilarar hittast og geta þróað með sér nýja hluti. Leikurinn verður einnig gefinn út í svokallaðri Legend Edition , en í þeirri útgáfu er mjög mikið af aukaefni sem gerir spilunina enn betri og skemmtilegri. NBA 2K20 Tölvuleikir

RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=